Hér er á ferðinni ljúffeng uppskrift að klassískum hummus sem kemur úr smiðju Hönnu Ingibjörgu Arnarsdóttur matgæðings sem vel er hægt að mæla með. Þessi hummus er ljómandi góður og fallegur á borðið. Hægt er að njóta hans við hvert tilefni, ofan á frækex, súrdeigsbrauð, naanbrauð eða foccaciabrauð svo fátt sé nefnt.
Hummus
- 1 dós soðnar kjúklingabaunir (u.þ.b. 250 g án vökva)
- 3-4 msk. gæða tahini
- 1-2 hvítlauksgeiri
- u.þ.b. 5-6 msk. gæða ólífuolía
- u.þ.b. ½ dl vatn
- 4 msk. sítrónusafi
- salt á hnífsoddi
- paprikuduft, til skrauts
- steinselja til skrauts
Aðferð:
- Setjið baunirnar í matvinnsluvél ásamt tahini, hvítlauk og vatninu.
- Látið ganga þar til allt hefur samlagast vel, bætið 2-3 msk. af olíu saman við ásamt sítrónusafanum og saltinu.
- Bætið vökvan ef þarf eða eftir því hvað hentar ykkar smekk.
- Athugið að vökvamagn kjúklingabauna getur verið mismunandi og því erfitt að gefa upp nákvæmt magn, þess vegna er brýnt að smakka til.
- Þegar hummusinn hefur fengið þá áferð sem þið viljið setjið hann þá á disk og setjið svolítið af ólífuolíu yfir ásamt paprikudufti og steinselju, einnig er fallegt að setja nokkrar heilar kjúklingabaunir yfir.