Hér er á ferðinni þristakaka með saltkaramellu þristakremi sem er svo syndsamlega góð að það er erfitt að stoppa eftir fyrstu sneiðina. Hún er lungamjúk, blaut í sér, með þristabitum og silkimjúku kremi úr þristum og saltkaramellu. Uppskriftin kemur úr smiðju Andreu Gunnars sem heldur úti uppskriftasíðu í sínu nafni. Þessa köku má enginn súkkulaðiunnandi láta fram hjá sér fara, hún er svo unaðslega góð.
Þristakaka
- 200 g suðusúkkulaði
- 150 g smjör
- 175 g púðursykur
- 4 egg
- 1 tsk. salt
- 5 msk. hveiti
- 1 pk. þristar, skornir í sneiðar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C hita.
- Bræðið suðusúkkulaðið og smjörið saman í potti.
- Hrærið saman eggjum og púðursykri í skál með gaffli, ekki þeyta deigið á neinum tímapunkti.
- Hrærið súkkulaðiblöndunni saman við eggin og púðursykurinn.
- Bætið salti og hveiti saman við og hrærið vel saman.
- Bætið þristunum saman við deigið og blandið vel.
- Setjið bökunarpappír í botninn á 20 cm móti og smyrjið mótið að innan.
- Hellið deiginu í formið og bakið í 45 mínútur.
- Látið kökuna kólna alveg áður en kremið er sett á.
Saltkaramelluþristakrem
- 50 g smjör
- 50 g smjörlíki
- 50 g suðusúkkulaði
- 5 litlir þristar
- 2 msk. saltkaramella (heimatilbúin eða keypt, ég notaði frá Skúbb)
- 2 msk. síróp
- 2 msk. rjómi
- 2 dl flórsykur
Aðferð:
- Þeytið smjör og smjörlíki saman á háum hraða í 7 mínútur.
- Bræðið suðusúkkulaði, þrista, síróp og rjóma saman yfir vatnsbaði og látið kólna aðeins.
- Setjið 2 matskeiðar af saltkaramellu saman við smjörið og þeytið áfram í nokkrar mínútur.
- Bætið þristablöndunni varlega út í og þeytið áfram um dágóða stund.
- Bætið að lokum flórsykrinum saman við í smáum skömmtum og þeytið vel á milli.
- Þeytið kremið að lokum í 8 mínútur eða þangað til það er orðið alveg slétt og silkimjúkt.
- Setjið kremið yfir kökuna og skreytið að vild.