Þessar litlu morgunverðarommelettur eru ótrúlega góðar og krúttlegar. Gaman er að bera þessar fram á morgunverðarbakka upp í rúm og njóta og bjóða upp á góðan drykk með. Kristjana Steingrímsdóttir, Jana heilsumarkþjálfi, töfraði þessar fram á dögunum og þær koma svo ljómandi vel út að það er vel hægt að mæla með þeim. Blönduna má líka setja í eldfast mót og búa til ljúffenga eggjaböku ef vill. Jana heldur úti Instagram-síðunni hér þar sem hægt er að finna mikið úrval af girnilegum uppskriftum.
Litlar ommelettur í bollaköku formi
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C hita.
Byrjið á því að píska saman eggin í góðri skál.
Setjið síðan allt hráefnið í skálin og hrærið öllu vel saman.
Hellið í bollakökuform, getið notað silíkon-form þá losna ommeletturnar vel úr forminu eftir bökun eða sett í hefðbundin bollakökuform.
Setjið inn í ofn og bakið í um það bil 14-16 mínútur.
Takið úr forminu og berið fram á falllegan hátt með því sem hugurinn girnist.