Túnfiskssalat er eitthvað sem er sáraeinfalt að búa til, geymist vel og mörgum finnst gott með brauði, ofan á frækex eða annað gott kex. Eins og með svo margt annað þá er mjög einfalt að skella í túnfiskssalat í stað þess að kaupa það tilbúið og svo er það líka miklu betra heimalagað. Þá getur þú stjórnað innihaldinu og svo er það líka mun betra fyrir budduna. Hér er hugmynd að túnfiskssalati frá Hönnu Thordarson, matgæðingi og keramiker, sem heldur úti uppskriftasíðunni Hanna. Salatið er ómótstæðilega gott og sérstaklega gott ofan á frækex og súrdeigsbrauð. Hráefnið er ekki skilyrði nema að sjálfsögðu túnfiskurinn, það má taka út og bæta við eftir smekk. Vert er að hafa í huga að oft verður túnfiskssalat betra þegar það fær að jafna sig í kæli yfir nótt.
Túnfiskssalat að hætti Hönnu
Aðferð: