Uppskriftin fyrir helgarbaksturinn að þessu sinni kemur úr smiðju Finns Guðbergs Ívarssonar verðandi bakara en hann hefur reglulega opnað uppskriftabækur sínar fyrir lesendum Morgunblaðsins.
Finnur hefur mikið dálæti á að vinna með hágæðahráefni og nýta það vel. Hann elskar að baka og matreiða fyrir sig og sína og er iðinn við að bjóða upp á heimagerðar kræsingar. Finnur er líka listrænn og ber kræsingarnar sínar ávallt fram á fallegan og aðlaðandi hátt.
Finnur sviptir hér hulunni af sinni uppáhaldsuppskrift að tíramisú sem er tilvalið að bjóða upp á í eftirrétt í matarboðinu um helgina. Uppskriftin er hugsuð fyrir tólf en það er lítið mál að helminga uppskriftina. En af hverju tíramisú? Finnur heldur mikið upp á ítalska eftirrétti og sérstaklega tíramisú sem hefur farið sigurför um heiminn.
Finnur Guðberg Ívarsson verðandi bakari er
listrænn og vandvirkur og hefur mikið dálæti á því að bera fram fallegar kræsingar fyrir sig og sína.
mbl.is/Árni Sæberg
Upprunalega frá Norður-Ítalíu
Tíramisú er upprunalega frá norðurhluta Ítalíu og sérstaklega borginni Veneto og svæðinu í kring. Tíramisú er einn vinsælasti ítalski eftirrétturinn og löngu orðinn vinsæll um allan heim eins og áður sagði. Hann er uppbyggður með kexi sem hefur legið í kaffi, oft kallað ladyfingers eða frúarfingur, síðan kremi úr mascarpone-osti og rétturinn er ávallt toppaður með kakódufti.
„Sumir telja að tíramisú eigi að vera stíft eins og hlaup en aðrir að það eigi að vera meira laust í sér og kremað.
Ég persónulega er á þeirri skoðun og finnst það bæði bragðbetra og áferðin einnig skemmtilegri. Aftur á móti verður það ekki alveg eins fallegt en þá er hægt að setja eftirréttinn í lítil glös í stað eldfasts móts ef maður vill hafa þetta meira fyrir augað,“ segir Finnur og hvetur hvern og einn til að hafa sinn háttinn á hvernig rétturinn er framreiddur.
Þegar verið er að leggja lokahönd á verkið og strá kakódufti yfir tíramisúið verður
löngunin sterk í þennan ítalska
eftirrétt sem slær öll met.
mbl.is/Árni Sæberg
Tíramisú
Fyrir 12
Frúarfingur (ladyfingers)
- 120 g sykur
- 4 egg
- 140 g hveiti
- 30 g kartöflumjöl
Aðferð:
- Byrjið á að hita ofninn í 210° C.
- Skiljið eggjarauður frá -hvítunum og setjið rauðurnar til hliðar.
- Setjið eggjahvítur og sykur saman í hrærivél og þeytið eins og marens.
- Bætið síðan rauðunum út í í nokkrum hlutum og hafið hrærivélina á meðalhraða.
- Hrærið síðan hveiti og kartöflumjöl varlega saman við blönduna með sleikju.
- Takið síðan blönduna og setjið í sprautupoka og sprautið í lengjur á smjörpappír eða smyrjið út ef þið eigið ekki sprautupoka.
- Stráið síðan sykri yfir deigið og bakið í 10-15 mínútur eða þar til lengjurnar eru eins og svampur viðkomu.
Mascarpone-krem
- 8 eggjarauður
- 240 g sykur
- saltklípa
- 400 g mascarpone-ostur
- 2 tsk. vanilludropar
- 300 ml rjómi
Aðferð:
- Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður til létt og ljós.
- Bætið marscarpone og vanilludropum út í og þeytið í 1-2 mínútur.
- Hellið loks rjómanum út í, ísköldum og óþeyttum, í mjórri bunu og hafið hrærivélina á miðlungshraða.
- Þeytið í 2-4 mínútur eða þar til blandan þykknað töluvert, vert er að hafa í huga að hún verður aldrei jafn þykk og þeyttur rjómi.
Samsetning
- 5 skot espressokaffi
- 2 msk. romm (má sleppa)
- frúarfingurnir nýbökuðu
- kakóduft eftir þörfum
- mascarpone-krem
Aðferð:
- Byrjið á því að dýfa frúarfingrunum í kaffi- og rommblönduna og raðið í botn á eldföstu móti, smyrjið síðan helmingi kremsins yfir.
- Setjið þá annað lag af fingrum ofan á og afganginn af kreminu.
- Sigtið síðan kakó yfir og kælið í að minnsta kosti sex klukkustundir.