Í upphafi nýrra viku er ávallt vinsælt að bjóða upp á fisk í matinn. Steiktur fiskur í raspi nýtur vinsælda hjá mörgum og heimalagað remúlaði er það sem flestir vilja fá með steikta fiskinum sínum. Theodór Haraldsson matreiðslumeistari í mötuneyti ÚA bauð upp á steiktan fisk í raspi með heimalöguðu remúlaði og brúnuðum lauk. Rétturinn sló í gegn í mötuneytinu og mikil eftirspurn var eftir uppskriftinni. Hann deilir hér með lesendum matarvefsins uppskriftinni sinni hvernig hann eldar steikta fiskinn og lagar meðlætið sem einnig birtist á heimasíðu Samherja hér.
„Það eru auðvitað mikil forréttindi að hafa gott aðgengi að fyrsta flokks hráefni, auk þess sem fiskur er alltaf vinsæll hérna í mötuneytinu,“ segir Theodór.
Með á diskinn með steikta fiskinum settur Theodór líka fersk salat og sítrónusneiðar. Girnileg máltíð.
Ljósmynd/Sindri Swan
Steiktur fiskur í raspi með remúlaði og brúnuðum lauk
Fiskur í raspi
Fyrir 4-6
- 1,5 g Þorskur
- 6 egg
- 500 g rasp
- 500 g hveiti
- 50 g salt
- 50 g hvítur pipar
- 2 msk. sítrónupipar
- Allt að verða tilbúið
- 1 msk. paprikukrydd
- 1 msk. karrí
- 1 msk. laukduft
- Ólífuolía
- Klípa af smjör
Aðferð:
- Skerið þorskinn niður í hæfilega bita.
- Pískið eggin saman í skál ásamt kryddum.
- Veltið fiskinum velt upp úr hveiti, veltið upp úr eggjunum og svo í lokin upp úr raspinu. Steikið fiskinn síðan á pönnu upp úr smá olíu og klípu af smjöri.
Remúlaði
- 50 g majónes
- 50 g súrmjólk
- 1 stk. laukur fínt saxaður
- 3 msk. dijon sinnep
- 1 msk. sætt sinnep
- 75 g súrar gúrkur
- 2 msk. kapers saxaður
Aðferð:
- Blandið þessu öllu saman og smakkið til.
Brúnaður laukur
- 2 stk. laukur
- 1 msk. steinselja þurrkuð
- Olía til steikingar
- Smá klípa smjöri
Aðferð:
- Sneiðið laukinn niður og steikið á pönnu þangað til hann verður fallega brúnn á litinn.
- Bætið þá við smá smjöri á pönnuna og látið laukinn malla í nokkrar mínútur til viðbótar.
- Berið steikta fiskinn fram remúlaði, soðnum kartöflum, brúnuðum lauk og sítrónusneið.