Salat vikunnar á matarvefnum að þessu sinni kemur úr smiðju Berglindar Hreiðarsdóttur matar- og lífsstílsbloggara hjá Gotterí og gersemar en hún er snillingur í því að setja saman girnileg salöt. Þetta er matarmikið og djúsí salat með nautakjöti, sultuðum balsamik lauk, jarðarberjum og alls konar góðgæti.