Salat vikunnar á matarvefnum að þessu sinni kemur úr smiðju Berglindar Hreiðars hjá Gotterí og gersemar og á vel við á þriðjudegi. Þetta er nefnilega mexíkóskt salat og þar sem formlega stóri tacó-dagurinn er hjá mörgum í dag er upplagt að bjóða á uppskrift að dýrindis tacó-salati. Þetta salat á pottþétt eftir að hitta í mark á mörgum heimilum.