Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans töfraði fram guðdómlegt japanskt kjúklingasalat sem er tilvalið að hafa í matinn í kvöld, á morgun eða hinn. Þetta kjúklingasalat er einnig sniðugt í veislur en um næstu helgi fara fram útskriftarveislur úr menntaskólum landsins.
Í stað þess að setja salatið í stóra skál á veisluborðið mætti líka setja það í lítil glös eða krukkur.
Hér er það fallega borið fram í stórri skál sem er falleg á veisluborð eða bara í kvöldmatinn fyrir fjölskylduna.
mbl.is/Arnþór Birkisson
Japanskt kjúklingasalat
Marta María mælir með því að fólk byrji á því að útbúa sósuna.
Sósa
- ½ bolli ólífuolía
- ¼ bolli balsamic edik
- 2 msk. sykur
- 2 msk. sojasósa
Aðferð:
- Setjið allt í pott og sjóðið saman í u.þ.b. 1 mínútu.
- Takið af hitanum og hrærið í á meðan blandan kólnar (til að sósan skilji sig ekki).
- Sósan er borin fram köld til hliðar við salatið.
Núðlublanda
- 1 poki núðlur (instant súpunúplur) – ekki nota krydd sem fylgir með
- 1-2 msk. sesamfræ
Aðferð:
- Brjótið núðlurnar smátt niður.
- Ristið á þurri pönnu, byrjið á núðlunum því þær taka lengri tíma og bætið síðan sesamfræjum á pönnuna.
- Athugið að núðlurnar eiga að vera stökkar.
- Leggið til hliðar í litla skál.
Kjúklingasalat
- 4 kjúklingabringur
- 1 dl sweet hot chillisósa
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar í strimla.
- Kryddið með kjúklingakryddi og snöggsteikið í olíu.
- Hellið sweet chilisósunni yfir og látið sjóða við vægan hita um stund.
Annað hráefni í kjúklingasalat
- Salatpoki/klettasalat eða iceberg salat
- Kirsuberjatómatar
- Mangó
- Paprika, allir litir sem fást
- Rauðlaukur, má sleppa
Aðferð:
- Skerið allt grænmeti og ávexti niður og setjið í botninn á fati.
- Stráið hluta af ristuðu núðlublöndunni yfir, svo hluta af balsamic-sósunni.
- Að lokum er kjúklingaræmunum dreift yfir.
- Það er ágætt að geyma hluta af núðlublöndunni og sósunni til hliðar, ef einhverjir vilja meira, fer eftir smekk.