Bryndís Geirsdóttir lærir landslagsarkitektúr við Landbúnaðarskóla Íslands á Hvanneyri þar sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni. Hún var heimsótt í Hringferð Morgunblaðsins á dögunum. Í heimsókninni töfraði hún fram sérlega girnilegt rækjusalat sem rann ljúflega niður ásamt öðrum kræsingum.
Rækjusalat Bryndísar Geirs
- 200 g góðar rækjur. Bryndís skolar þær með köldu vatni í gegnum skilti og pressar sem mest úr þeim.
- 4 Harðsoðin egg.
- 1-2 msk. majones
- Steinselja og/eða kóríander smátt saxað.
- Pínulítil skvetta af sítrónusafa.
- Örlítið af ferskum hvítlauk, um það bil 1/4 af litlum geira sem er rifið yfir salatið í lokin.
- Ferskur chili pipar, mjög smátt skorinn og magn eftir smekk.
- Ysta lagið af sítrónu- eða límónuberki rifið yfir með rifjárni.
- Salt og pipar eftir smekk.
Aðferð:
- Blandið þessu saman í skál.
- Gott er að bera fram með brauði eða kexi.
Hér má sjá rækjusalatið sem Bryndís útbjó þegar blaðamenn Morgunblaðsins heimsóttu hana á dögunum.
mbl.is/Brynjólfur Löve