Hægt er að borða þetta salat með próteingjöfum eins og kjúklingi, nautakjöti eða fiski.
Taílensk ofursósa
- ¼ bolli lífrænt hnetusmjör
- 2 tsk. ókryddað hrísgrjónaedik
- 2 tsk. límónusafi
- 3 tsk. ólífuolía
- 1 tsk. tamari sósa
- 2 tsk. lífrænt hunang
- 2 1/2 tsk. sykur
- 2 lífræn hvítlauksrif
- 2,5 cm biti af fersku engifer, afhýddur og skorinn smátt
- 1 tsk. salt
- 1/2 tsk. muldar rauðar piparflögur
- 2 tsk. fersk kóríanderblöð
Aðferð:
- Allt sett í blandara og þeytt saman
Salatið sjálft
- 4 bollar saxað hvítkál eða rifin hrásalatblanda. Það má setja smá rauðkál út í ef vill.
- 1 bolli rifnar gulrætur
- 1 rauð paprika, þunnt skorin í hæfilega stóra bita
- 1 lítil agúrka, fræhreinsuð og skorin í smáa bita.
- 2 meðalstórir laukar, skornir í þunnar sneiðar
- ½ bolli saxað ferskt kóríander
Það má svo bæta við lárperum, baunaspírum eða blómkáli eða nota það sem til er í ísskápnum hverju sinni.