Perusalat er einfalt salat en afar dásamlegt. Það fer vel með til dæmis önd eða öðru dökku kjöti.
Galdurinn er að hita perurnar upp úr sykri á pönnu þannig að þær verði svo mjúkar og safaríkar að erfitt er að hætta að borða þær.
Kosturinn við þessa uppskrift er að hún virkar með mismunandi hráefnum. Í raun má leika sér með alls kyns osta og bæta við hráefnum ef svo ber undir.
Fljótlegt perusalat sem allir elska
- 3 Perur
- Klípa af smjöri
- 3 msk. hrásykur
- 1 poki klettasalat eða spínat
- 1 rauðkál
- 1 Castello ostur, geitaostur eða gráðaostur
- 3 msk. balsamik edik
- Valhnetukjarnar að smekk
- Trönuber eða granatepli að smekk til að skreyta
Aðferð:
- Perurnar eru skornar í sneiðar eða bita og steiktar upp úr smjöri á pönnu og látið malla í smá stund.
- Hrásykri bætt út í og lækkað undir hellunni og leyft að karamellast um stund.
- Öðrum hráefnum blandað saman í skál. Trönuberjum og valhnetum stráð yfir salatið og það borið fram. Það má líka nota fræ úr granateplum ef fólk vill gera vel við sig.