Berglindi Festival langar í íslensku kleinuna og upprúllaða pönnuköku

Berglind Pétursdóttir, betur þekkt undir nafninu Berglind Festival hlakkar til …
Berglind Pétursdóttir, betur þekkt undir nafninu Berglind Festival hlakkar til kjördags og vonast eftir að fá íslensku kleinuna og upprúllaðar pönnukökur með sykri. Samsett mynd

Spennan vex og kjördagur nálgast óðum en á laug­ar­dag­inn 1. júní næst­kom­andi munu Íslend­ing­ar kjósa sér nýja for­seta. Það má fast­lega bú­ast því að hald­in verði ófáa kosn­ingakaffi­boðin og marg­ir munu gera sér glaðan dag og bjóða í kosn­ingapartí og grill.

Berglind Pétursdóttir, betur þekkt sem Berglind Festival, er næsti viðmælandi matarvefsins sem ætlar að svara nokkrum laufléttum spurningum um dagskrá sína á kjördag. Berglind þykir með skemmtilegustu manneskjum landsins og kann svo sannarlega að njóta lífsins. Hún er löngu búin að und­ir­búa stór­an dag­inn og ákveða hvað hún ætlar að kjósa og hlakkar til að klæða sig í spariskó í tilefni dagsins. Hún vonast líka eftir að íslenska kleinan verði á kosningahlaðborðum forsetaframbjóðendanna og upprúlluð pönnukaka með sykri.

Þjóðlegar og góðar íslensku pönnukökurnar með sykri.
Þjóðlegar og góðar íslensku pönnukökurnar með sykri. mbl.is/Árni Sæberg

Löngu búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa

Ætlar þú að mæta í kosningakaffi á kjördag?

„Listahátíð í Reykjavík hefst á kjördag svo dagurinn fer að mestu leyti í að sjá stórkostlega viðburði um allan bæ, vonandi verður boðið upp á kaffi á einhverjum þeirra. Ég er fyrir löngu búin að ákveða hvern ég ætla að kjósa og hlakka til að klæða mig í spariskó og eiga hátíðlegan kjördag,“ segir Berglind með bros á vör.

Hvað finnst þér mest heillandi á kosningakaffihlaðborðið?

„Íslenska kleinan eða upprúlluð pönnukaka með sykri, og flest svona sem er hægt að borða án þess að nota disk. Ég hef engan tíma til að nota disk á kjördag.“

Heimabakaðar kleinur njóta ávallt vinsælda.
Heimabakaðar kleinur njóta ávallt vinsælda. mbl.is/Sverrir

Mætir með glænýjan burrata-ost í matarboðið

Ertu búin að ákveða matseðilinn fyrir kvöldverðinn á kjördag?

„Mér er boðið í matarboð hjá miklum matgæðingum um kvöldið svo ég þarf ekkert að hugsa um það, sem er æðislegt. Ég bauðst til að koma með forrétt svo ég mæti líklegast með glænýjan burrata-ost sem mér áskotnaðist hjá ostsalanum mínum fyrr í vikunni. Kjördagur er dagur ostsins.“

Á að mæta í kosningapartí?

„Já, ég læt að sjálfsögðu sjá mig í öllum flottustu kosningapartíunum, eins og alltaf,“ segir Berglind að lokum sem er að missa sig yfir kjördeginum og bíður spennt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert