Heimsmeistaramót ungra bakara haldið á Íslandi

Stefanía Malen Guðmundsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir bakarar verða fulltrúar …
Stefanía Malen Guðmundsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir bakarar verða fulltrúar Íslands sem keppa á heimsmeistaramóti ungra bakara hefst á morgun á Íslandi. Sigurður Már Guðjónsson er formaður LABAK. Samsett mynd

Dagana 3. til 5. júní næstkomandi verður heimsmeistaramót ungra bakara haldið á Íslandi. Keppnin hefur verið haldin af International Union of Bakers & Confectioners (UIBC) síðan 1972.

Fyrsta sinni á Íslandi

Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi bakara er þetta í fyrsta skipti sem LABAK stendur fyrir svona stóru móti á Íslandi. „Um er að ræða stóran viðburð sem er þekktur í heimi bakara. UIBC var stofnað árið 1931 í Búdapest og er alþjóðasamband bakara og kökugerðarmanna um allan heim,“ segir Sigurður Már Guðjónsson forrmaður LABAK. Sambandið er fulltrúi um 300.000 bakaría í fimm heimsálfum þar sem um fjórar miljónir einstaklinga starfa í bakaríum heimsins. Félagið stendur fyrir allskyns viðburðum um allan heim og samhliða heimsmeistaramótinu mun Ísland verða miðpunktur umfjallana þessara aldagömlu iðngreinar hjá þátttökulöndum.

7 lið keppa um meistaratitilinn

Í ár keppa 7 lið um meistara titilinn og fer mótið fram í Hótel- og veitingaskólanum í Kópavogi. Ísland er meðal keppenda í ár og eru keppendur tvær efnilegar ungar konur sem skara fram úr á sínu sviði, sem valdar hafa verið af kennurum skólans til að taka þátt og verða fulltrúar Íslands. Einnig verða virtir erlendir dómarar í faginu sem koma til Íslands til að dæma liðinn á meðan keppni stendur. Löndin sem keppa til úrslita eru Ísland, Þýskaland, Frakkland, Spánn, Svíþjóð, Ungverjaland og Kína og munu fulltrúar þeirra framreiða þjóðlegan bakstur sem dómarar UIBC munu dæma. Fulltrúar Íslands fyrir hönd LABAK eru þær Hekla Guðrún Þrastardóttir og Stefanía Malen Guðmundsdóttir bakarar.

Ljósmynd/LABAK

Mæta á Bessastaði að hitta Elizu

Undirbúningur og fyrsta rennsli verður á morgun, þann 3. júní, frá kl. 14:00 þar sem Ísland mun keppa. Þann 4. júní munu keppendur svo mæta á Bessastaði og hitta Elizu Jean Reid forsetafrú og bjóða upp á þjóðlegar kökur í tilefni af heimsmeistaramótinu. Verðlaunaafhending verður 5. júní klukkan 16:30 í Menntaskólanum í Kópavogi.

Sambandið hefur staðið fyrir heimsmeistaramótum bakara og kökugerðarfólks víða um veröld og má nefna að hér á Íslandi var haldið haustið 2022 heimsþing samtakanna, einnig þá í fyrsta skipti í sögu bakara á Íslandi.

Streymt verður frá keppninni og hægt verður að nálgast streymi hér og hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert