Þá er komið að helgarbakstrinum sem er ómissandi hér á matarvefnum og nýtur mikilla vinsælda. Hér er á ferðinni er kaka sem er svo góð fyrir sálina og kemur úr smiðju Brynju Döddu Sverrisdóttur ofan úr fjallinu í Kjós úr Móberginu. Þetta er afar einföld uppskrift og það þarf ekki einu sinni hrærivél til að töfra þessa guðdómlegu köku fram.
„Þessi uppskrift kemur upprunalega frá Ívari kokki í Smáratúni í Fljótshlíð en hefur eitthvað aðeins breyst í mínum fórum eins og gerist með uppskriftir,“ segir Brynja Dadda sem elskar að nostra við fólkið sitt í mat og drykk.
Þeyttur rjómi dugar vel með þessari.
Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir
Kaka sem er góð fyrir sálina úr smiðju Brynju
- 1 bolli döðlur
- 1 bolli pekanhnetur
- 100 g suðusúkkulaði
- ½ bolli hrásykur
- 3 msk. spelt hveiti
- 1 tsk. vínsteinslyftiduft
- 3 msk. heitt vatn
- 2 egg
- Döðlur, hnetur og súkkulaði saxað smátt (matvinnsluvél hentar ágætlega)
Aðferð:
- Hrærið saman sykri, hveiti og bætið síðan við lyftidufti og hrærið aðeins saman.
- Blandið eggjum og vatni saman við og hrærið þar til hefur blandan hefur samlagast.
- Látið standa smá stund áður en sett er í form.
- Bakað við 150°Chita í 40 mínútur á blæstri. Ofnar geta veriðmisjafnir, stundum getur þetta verið 3-5 mínútur til eða frá.
Súkkulaðibráð ofan á
- 100 g súkkulaði
- Smjörklípa
Aðferð:
- Bræðið súkkulaði með örlítilli smjörklípu og smyrjið síðan ofan á kökuna.
- Berið kökuna síðan fram þeyttum rjóma og berjum eftir smekk.