Hafdís Renötudóttir landsliðskona í handbolta á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni þar sem næringargildið er í forgrunni. Hafdís spilar handbolta fyrir félagsliðið Val og íslenska kvennalandsliðið í handbolta þar sem hún stendur vörð um markið.
„Nýlega á dögunum tryggðum við í landsliðinu okkur miða á Evrópumeistaramótið í handbolta sem haldið verður í Austurríki, en í heildina hef ég spilað 57 landsleiki og skorað 4 mörk. Við í Val vorum á dögunum að tryggja okkur Íslandsmeistaratitilinn, en núna erum við fjórfaldir meistarar eftir tímabilið. Það er ótrúlegur árangur,“ segir Hafdís. Eftir úrslitaleikinn gerði Hafdís sér lítið fyrir og vann titilinn „Verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar”. Utan handboltans vinnur Hafdís innan raforkugeirans, en hún vinnur hjá Straumlind og er titluð sem markaðsstjóri þar.
Vil borða prótein, kolvetni og fitu sem hámarka getu mína
„Árið 2013 gerðist ég vegan og hef verið síðan þá. Þar sem ég er íþróttakona og vegan einstaklingur, er mikilvægt að næra mig vel. Ég vil borða prótein, kolvetni og fitu í þeim hlutföllum sem hjálpar mér að hámarka getuna mína á vellinum. Mér finnst mikilvægt að borða ekki einungis hollan mat, heldur líka gómsætan mat sem nærir bæði líkama og sál. Eftir dagvinnuna og handboltaæfinguna hef ég gaman að því að koma heim og borða góðan mat, og kvöldverðarmatseðillinn minn lítur einhvern veginn svona út,“ segir Hafdís með bros á vör.
Mánudagur – Samloka með lúxusáleggi
„Mér finnst gott að henda í einfalt og gott á mánudegi, ég vinn mikið með góðar samlokur eins og þessa. Ég veganæsa samlokuna með því að nota vegan smjör og vegan ost. Til að próteinbæta máltíðina set ég bragðgott sojakjöt í samlokuna.“
Samloka með lúxusáleggi.
Ljósmynd/Aðsend
Lúxusútgáfan af brauðmat
- 1 baguette
- 15 g smjör
- Handfylli af salati, að eigin vali
- 125 g mildur brie-ostur eða geitaostur
- ¼ gúrka
- 125 g jarðarber
- Pipar
Aðferð:
- Skerið baguette-brauðið til helminga og smyrjið botn og lok með smjöri.
- Skerið ostinn og gúrkuna í þunnar skífur. Skerið jarðarberin í skífur.
- Setjið salat, ost, gúrku og jarðarber á botninn á brauðinu og stráið svörtum pipar yfir.
- Skerið baguette-samlokuna í fjóra jafnstóra bita og berið fram.
Þriðjudagur – Ljúffengt grænmetislasanja
„Lasanja er einfalt, en gott. Ég set vegan ost í staðinn fyrir kúaostinn.“
Girnilegt grænmetislasnja.
Ljósmynd/Aðsend
Miðvikudagur – Heimagerðar pítur
Pítur með heimagerðir pítusósu.
Ljósmynd/Tinna Th.
Grænmetispíta með heimagerðri pítusósu – vegan
- 3 pítubrauð við borðum 1 og hálfa pítu á mann
- 280 g hreint soja kjöt ég notaði Oumph! The Chunck
- 2 msk. Rótargrænmetið frá Pottagöldrum
- 90 g salat blanda
- 10 kirsuberja tómatar
- 1/4 rauðlaukur
- sriracha sósa –má sleppa
Pítusósa
- 3 msk. vegan majónes
- 2 tsk. Herbs de Provence frá Pottagöldrum
Aðferð
- Steikið soja kjötið upp úr smá olíu og kryddið með Rótargrænmetis kryddinu frá Pottagöldrum.
- Skerið grænmetið eins og þið viljið hafa það og setjið í stóra kál.
- Blandið saman majónesi og Herbs de Provence frá Pottagöldrum.
- Ég notaði frosin pítubrauð svo ég hitaði þau í smá stund í ofni.
- Skerið sojakjötið í munnbitastærðir og setjið út í skálina með grænmetinu.
- Setjið pítusósuna út í skálina líka og blandið öllu vel saman.
- Ég sker píturnar í tvennt og set blönduna svo inn í – finnst ég koma meiru fyrir þannig og auðveldara að borða pítuna.
- Ég toppaði svo pítuna með smá sriracha sósu en það er ekki nauðsynlegt og má alveg sleppa. Mér finnst gott að hafa smá sterkt með pítunni.
- Berið fram einar og sér eða með góðum kartöflubátum.
Fimmtudagur – Gochujang- kjúklingur
„Við á heimilinu elskum gochujang og veganæsum þennan rétt ansi oft. Þá notum við vegan kjúkling í staðinn og sleppum fiskisósunni.“
Gochujang-kjúklinga "stirfry" að hætti Snorra.
Ljósmynd/Snorri Guðmundsson
Gochujang- kjúklingur
Fyrir 2
- 400 grömm skinn & beinlaus kjúklingalæri skorin í strimla
- 1 laukur skorinn í strimla (150 grömm)
- 2 stór smátt söxuð hvítlauksrif (sirka 8 grömm)
- 20 grömm rifin eða mjög smátt skorin engiferrót
- 1 matskeið hrásykur
- 1 matskeið soyasósa
- 2 teskeiðar fiskisósa
- 2 teskeiðar lime safi
- 1 matskeið gochujang
- 1 -2 matskeiðar matreiðsluolía
- 1 gulrót rifin með grófu rifjárni (100 grömm)
- 50 grömm snjóbaunir
- 1 lítil paprika skorin þunnt (sirka 70 grömm)
- 2 radísur skornar mjög þunnt (20 grömm)
- 1 þroskuð pera, skræld og skorin í sneiðar (sirka 150 grömm)
- 10 grömm ristaðar kókosflögur
- 6 stilkar af kóríander
- Salt & pipar eftir smekk
Aðferð:
- Setjið kjúklinginn, laukinn, hvítlaukinn, hrásykurinn, engifer, soyasósuna, fiskisósuna og lime safan í skál og blandið vel saman. Látið marinerast í 30-60 mín.
- Hitið 1 matskeið af olíu á pönnu á háum hita og steikið kjúklinginn og laukinn í 2 mín á annari hliðinni eða þar til hann er orðinn fallega brúnaður og svo í 1 mín á hinni hliðinni. Best er að steikja kjúklinginn í 3 skömmtum þar sem hann steikist illa ef það er of mikið á pönnunni í einu.
- Bætið við ögn af matreiðsluolíu á milli skammta.
- Lækkið hitann ögn og setjið allan kjúklinginn aftur á pönnuna ásamt 1 matskeið af gochujang og rifnu gulrótinni og hrærið vel saman í 1 mín.
- Bætið næst við 3/4 af paprikunni og öllum snjóbaununum og steikið þar til snjóbaunirnar eru eldaðar, en ekki orðnar alveg mjúkar undir tönn. Smakkið til með salti og pipar. Sirka 2-3 mínútur.
- Fjarlægið af hitanum og skiptið á milli diska. Skreytið með perusneiðunum, radísunum, restinni af paprikunni, kókosflögunum og kóríander. Berið fram með hvítum hrísgrjónum.
Föstudagur – Taco-veisla
„Ég reyni að borða hollan, próteinríkan en einnig kolvetnaríkan mat daginn fyrir leik.“
Guðdómlegt taco að hætti Ellu Stínu.
Ljósmynd/Ella Stína
Laugardagur – Tófúhræra á ristað brauð
„Eftir leik finnst mér gott að fá mér eitthvað létt, eins og tófúhræru á ristað brauð.“
Tófuhræran hennar Heiðdísar er hin girnilegasta.
Ljósmynd/Heiðdís Hlynsdóttir
Sunnudagur – Grænmetissteik og meðlæti
„Sunnudagarnir eru rólegir hjá mér, en ég geri vel við mig í eldhúsinu. Þess vegna fæ ég mér grænmetissteikina frá Ellu Stínu með rótargrænmeti, haustsalati og tahini sósu.“
Grænmetissteikin lítur vel út og meðlætið er lítríkt og fjölbreytt.
mbl.is/Árni Sæberg