Það er að ýmsu að huga þegar á að setja upp stóreldhús á veitingahúsi eða mötuneyti. Jóhannes Ægir, sölustjóra stóreldhústækja hjá Expert, gefur lesendum matarvefsins góð ráð við hvað stóreldhús þarf að hafa í tækjum og tólum. Expert hefur meðal annars komið að skipulagningu helstu stóreldhúsa á Íslandi og Jóhannes og hans samstarfsfólk þekkir því vel til í þessum geira.
,,Þegar á að byrja á stóreldhúsi á veitingahúsi eða mötuneyti þá er mikilvægast að skipuleggja það sem best og vera með réttu tækin fyrir þá matreiðslu sem hugað er að. Það margborgar sig að vera með góð og vönduð tæki í stóreldhúsinu sem endast vel og lengi," segir Jóhannes.
„Það helsta sem gott veitingahús og mötuneyti þarf að hafa í eldhúsinu eru gufusteikingarofn, grillpanna og djúpsteikingarpottur. Þá þarf auðvitað að vera broiler og gott vinnu- og kæliborð svo að skipulagið sé sem best og auðveldast að vinna við það sem á við. Broiler/grill eru í boði sem rafmagns, kola eða gas. Það er heitt núna í augnablikinu að vera með kolagrill en einnig er hægt að fá þau sem rafmagns eða gasgrill. Kælir og frystir eru að sjálfsögðu tæki sem ekkert stóreldhús getur verið án. Einnig eru hitaborð og gufupottur nauðsynlegir sem og veltipanna og loftræstiháfur, þá er búið að tryggja fullkomið eldhús. Síðan er auðvitað mikilvægt að hafa góða potta, pönnur, hnífa og allt annað smádót sem fylgir. Svo má auðvitað ekki gleyma einum af aðal hlutanum, uppvaskinu þar sem hlutirnir verða að vera vel skipulagðir og renna vel í gegn í samráði við eldhúsið," segir Jóhannes.
Aðspurður segir Jóhannes að það séu ótrúlega margir smáhlutir sem skipta máli og eiga til að gleymast í hraða leiksins. „Það má auðvitað ekki gleyma einum af aðalhlutanum, uppvaskinu, þar sem hlutirnir verða að vera vel skipulagðir og renna vel í gegn í samráði við eldhúsið.“
Jóhannes segir að mikil gróska sé í veitingabransanum sem og í mötuneytum fyrirtækja í dag og mikið sé leitað til þeirra um ýmis konar ráðgjöf. „Við vinnum mikið við að skipuleggja stóreldhús og bjóðum upp á úrval af eldhústækjum, stórum og smáum. Við finnum að það er mikil gróska hjá fyrirtækjum landsins í mötuneytis málum í dag. Það er verið að vanda til verka og leggja mikið í mötuneytin og eldhúsin þar sem er ánægjuleg þróun. Það skiptir auðvitað miklu mál að vera með hlutina í lagi í eldhúsinu og ekki síst í mötuneytum og veitingahúsum þar sem verið er að matreiða fyrir fjölda fólks. Það eru einnig spennandi tímar í veitingahúsageiranum því það eru sífellt að opna ný og flott veitingahús á Íslandi og önnur sem eru fyrir eru mörg hver að auka gæðin í mat og þjónustu og partur af því er að vera með vandað og gott eldhús. Þetta spilar allt saman," segir Jóhannes að lokum.