Mjólkurbúið mathöll og Dineout sameina krafta sína

Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, rekstrarstjóri Mjólkurbúsins og Andri Björn Indriðason sölustjóri …
Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, rekstrarstjóri Mjólkurbúsins og Andri Björn Indriðason sölustjóri Dineout. Ljósmynd/Dineout

Teymi Dineout og forsvarsmenn Mjólkurbúsins hafa unnið náið saman síðustu mánuði í að besta ferla og innleiða hugbúnaðarlausnir Dineout á veitingastaði í mathöllinni. Eins og greint er frá í fréttatilkynningu frá Dineout er þeim sönn ánægja að tilkynna formlegt samstarf á milli Dineout og Mjólkurbúsins mathallar á Selfossi. Forsvarsmenn félagsins mörkuðu sér strax í upphafi skýra stefnu. Þeir óskuðu eftir betri yfirsýn í bakendakerfi, aukinn sýnileika í gegnum markaðstorg Dineout og að ná til erlendra ferðamanna sem Dineout er með á sínum miðlum og í gegnum systur vörumerki sitt “Icelandic Coupons”. 

Sannkallað matarmenningarhús

Mjólkurbúið er staðsett í nýjum miðbæ Selfoss. Í mathöllinni má finna átta veitingastaði,  bar, pílu frá Skor og skyrsýningu í 1.500 fermetra rými með sæti fyrir yfir 300 manns. Staðir innan Mjólkurbúsins eru Ísey Skyr Bar, Menam Thai Food, Röstí, Menam DimSum, Takkó, Samúelsson Matbar, Romano Pasta, Flatey Pizza, Risið Vínbar og Skyrland. Ver­öld Mjólkurbúsins má sjá hér og vefsíðu Mjólkurbúsins hér.

Þjónustan skiptir öllu máli

„Við erum afar ánægð með að hafa hafið samstarf við Dineout og vera orðin hluti af þeirra stóra og glæsilega markaðstorgi. Það ríkir augljóslega mikill metnaður innan fyrirtækisins og allar þær væntingar og lausnir sem við óskuðum eftir hafa verið uppfylltar og leystar. Við leggjum mikið upp úr því að þjónusta viðskiptavini okkar sem allra best og að allt umhverfi og rekstur sé til fyrirmyndar. Þess vegna er traust og gott samstarf sem þetta okkur mikilvægt. Við hlökkum til að taka á móti gestum okkar í sumar þar sem miðbær Selfoss mun iða af lífi”, segir Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, rekstrarstjóri Mjólkurbúsins. 

Verð fastagestur í sumar

Andri Björn Indriðason, sölustjóri hjá Dineout er virkilega stoltur af samstarfinu og fagnar þeirri matarmenningu sem hefur sprottið upp á Selfossi. „Teymi Dineout þjónustar yfir 50 staði með hugbúnaðarlausnum á Suðurlandi og þeim fjölgar ört. Ætli við fjölskyldan verðum ekki fastagestir á Suðurlandinu allar helgar í sumar. Það er virkilega gaman að vera partur af svona uppbyggingu sem færir öllum landshlutum góðan mat.“ Fleiri mathallar verkefni eru á borðinu hjá Dineout og þakkar Andri fyrir það traust sem rekstraraðilar bera til teymisins hjá Dineout.

Ljósmynd/Dineout
Ljósmynd/Dineout
Ljósmynd/Dineout
Ljósmynd/Dineout
Ljósmynd/Dineout
Ljósmynd/Dineout
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert