Tómas Þóroddsson, alla jafna þekktur undir nafninu Tommi Krús, veitingamaður á Selfossi hefur undanfarin ár staðið fyrir Ostakökukeppni á Kaffi krús á Selfossi. Nú í ár tóku Kaffi krús og Konungskaffi sig saman og stóðu fyrir Ostaköku- og brauðtertukeppni, enda hafa brauðterturnar slegið í gegn á Konungskaffi. Sigurvegarar keppninnar í ár voru Anna Margrét Magnúsdóttir fyrir ostakökuna sína og Jessica Thomasdóttir fyrir sína brauðtertu.
Segðu okkur aðeins frá tilurð þess að þið tókuð ykkur saman og stóðu fyrir þessari sælkera keppni, Ostaköku- og brauðtertukeppni á dögunum?
„Ég rek Kaffi krús og mágkona mín rekur Konungskaffi, gárungar á Selfossi hafa spurt okkur út í samkeppni á milli staða og á hvorum staðnum sé betra kaffi og kökur og svo má lengi telja. Við bæði erum sannfærð um það að þessi kaffihús styrki hvort annað, enda ólík og ákváðum við yfir kaffibolla að halda sameiginlega keppni. Keppnin var haldin í nýja miðbænum á Selfossi og tókst svona rosalega vel, 16 kökur og tertur voru skráðar til keppni og yfir 300 manns komu til að skoða kökurnar,“ segir Tómas og er í skýjunum með þátttökuna.
Er mikil ostaköku- og brauðtertumenning á Selfossi?
„Já, ég held það sé meira en annars staðar. Við erum auðvitað með stærsta mjólkurbú landsins og þú þarft rjómaost í ostaköku og skyr í skyrköku. Svo gerir rjóminn og smjör auðvitað allt betra. Eins erum við Selfyssingar flestir komnir af sveitafólki og brauðtertugerð annáluð í sveitum landsins.“
Mikil gleði var með þátttökuna og dómnefndin var skipuð sælkerum, brauðtertu- og ostakökuaðdáendum. Í dómnefndinni sátu:
Hvernig gekk dómnefndinni að velja sigurvegarana?
„Það gekk mjög illa,“ segir Tómas með bros á vör. „Það voru svo margar kökur sem áttu skilið að vinna og dómnefndin var allt of lengi að störfum, en ég er nokkuð viss um að lokaniðurstaðan var góð. Á næsta ári verðum við með tvískipta keppni, og sitthvora dómnefndina, það er ekki hægt að leggja það á neina manneskju að smakka 16 kökur og tertur á 60 mínútum og sumar nokkrum sinnum,“ segir Tómas sposkur á svip.
Vert er að geta þess sigurkræsingarnar eru báðar komnar í sölu, ostakakan á Kaffi Krús og brauðtertan á Konungskaffi. Svo kaffihúsin skipta þessu jafnt á milli sín og engin samkeppni þar á ferð.
„Keppnin verður haldin árlega og erum við að miða við síðustu helgina í maí. Á næsta ári verður hún mun stærri, flottari og einnig tvískipt. Þannig að takið helgina frá fyrir Selfoss síðustu helgina í maí 2025,“ segir Tómas og bætir við að þau sem stóðu að keppninni vilji þakka öllum þeim keppendum, dómurum og þeim sem mættu að skoða kökurnar kærlega fyrir frábæran dag.
Fram undan er stór þjóðhátíðarhelgi, þar sem Íslendingar halda upp á 80 ára lýðveldisafmæli og 17. júní verður á mánudaginn næstkomandi. Búast má við því að brauðtertur og ostakökur verði vinsælar á hátíðarborðum landsmanna. Aðspurður segir Tómas að allt verði fremur hefðbundið á Kaffi krús en staðurinn hafi þróast meira út í að vera veitingastaður. „Við erum alltaf með krakkaköku fyrir yngstu kynslóðina á þjóðhátíðardaginn. Konungskaffi verður með mikla áherslu á brauðtertur og vöfflur ásamt öllum hinum þjóðlegu kræsingunum.“
Hulunni af uppskriftunum að vinningskræsingunum, ostakökunni ljúfu og brauðtertunni, verður svipt á Matarvef mbl.is um helgina. Lesendur matarvefsins eiga því von á spennandi uppskriftum fyrir þjóðhátíðargleðina.