„Deglazeaðu“ pönnuna og gerðu sósu

Ísak Aron Jóhannsson kennir þér að gera sósu úr litlu …
Ísak Aron Jóhannsson kennir þér að gera sósu úr litlu bitunum sem festast gjarna við pönnuna sem kallast að „deglazea“ á kokkamáli. Samsett mynd

Ísak Aron Jó­hanns­son, fyr­irliði ís­lenska kokka­landsliðsins og eig­andi veisluþjón­ust­unn­ar ZAK, gef­ur les­end­um mat­ar­vefs­ins góð hús­ráð alla föstu­daga sem nýt­ast vel við mat­ar­gerðina, bakst­ur­inn og þegar grilla skal. Nú ætlar Ísak að kenna þér að gera sósu úr litlu bitunum sem festast gjarna við pönnuna sem kallast að „deglazea“ á kokkamáli.

Frábær leið til að fá meira bragð úr matnum

„Þegar þú eldar kjöt eða grænmeti á heitri pönnu sérðu oftast litla bita sem festast við pönnuna, þetta kallast „fond“ á frönsku og er stútfullt af bragði. Til að ná þessu bragði er tilvalið að „deglazea“ pönnuna eins og það heitir á kokkamáli. Þú gerir það með því að hella víni, soði, safa, sterku áfengi eða einfaldlega vatni á heita pönnuna. Þannig losnar þetta frá pönnunni og fer allt bragðið í vökvann. Næst er þetta soðið niður og getur þú gert sósu úr þeim vökva, annað hvort að bæta við rjóma, smjöri eða soðið það meira niður í gljáa. Frábær leið til að fá meira bragð úr matnum,“ segir Ísak.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert