Þessi steik svíkur engan

Þessi steik gæti orðið þjóðhátíðarsteikin í ár.
Þessi steik gæti orðið þjóðhátíðarsteikin í ár. Samsett mynd

Þessa dýrðlegu steik verðið þið að prófa, hún er syndsamlega góð og svíkur engan. Matarmenn fóru á kostum á dögunum þegar þeir birtum þetta myndband á Instagram-síðu sinni, fólk hreinlega slefaði yfir steikinni. Hér er á ferðinni „dry aged Tomahawk Ribey “ásamt sætkartöflu „Mac & Cheese“ mús, og steikin er löðrandi í heimalöguðu steikarsmjöri. Er þetta ekki þjóðhátíðarsteikin í ár?

View this post on Instagram

A post shared by Matarmenn (@matarmenn)

Dry aged Tomahawk Ribey ásamt sætkartöflu „Mac & Cheese“ mús og heimalöguðu steikarsmjöri

Steikarsmjör 

300 g smjör 

Ólífuolía


1 hvítlaukur 

2 msk. hvítlauksduft


2/3 bolli fersk steinselja 

1 msk. paprikuduft


2 vorlaukar


1 msk. gróft Dijon sinnep

1 msk. Dijon sinnep

Chili blanda eftir smekk


Salt eftir smekk 




Aðferð:

Leyfið smjörinu að standa í stofuhita í minnst 3 klukkutíma.

Hitið ofninn í 200°C.

Skerið hvítlaukinn þvert, hellið ólífu olíu í sárið og stráið sjávarsalti yfir. 

Setjið nú hvítlaukinn í álpappír og inn í ofn í 35 mínútur eða þar til hann verður gullinbrúnn og mjúkur.

Setjið smjörið, hvítlauksduftið, paprikuduftið, dijon sinnepið, chili blöndu, salt, smátt skorinn vorlaukinn og steinseljuna saman í skál og blandið saman.

Að lokum kreistið þið bakaðan hvítlaukinn ofan í skálina. 



Blandið öllu saman með písk og setjið í smjörpappír, álpappír eða plastfilmu og geymið í ísskáp (sjá myndbandið).

Sætkartöflu „Mac & Cheese“ mús 



2/3 stór sæt kartafla 

200 g makkarónur 

Ólífu olía 

1 dl rjómi 

1 msk. tómat paste

Salt eftir smekk


2 bollar rifinn mozzarella

100 g rifinn parmesan ostur

1 msk. nýkreist sítróna 

Brauðteningar eftir smekk

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C.

Skerið sætu kartöfluna til helminga og penslið sárin með ólífuolíu.

Látið sárin snúa niður í eldföstu móti og bakið í 45 mínútur eða þar til kartaflan er orðin bökuð í gegn. 



Setjið bökuðu kartöfluna á pönnu ásamt rjómanum og leyfið að malla saman í um 2 mínútur á miðlungsháum hita. 



Sjóðið makkarónur eftir leiðbeiningum. 



Bætið á pönnuna tómat paste-inu, ólífuolíu slettu, mozzarella ostinum, salti, sítrónu og blandið saman. 



Næst koma makkarónurnar saman við og komið öllu fyrir í eldföstu móti.

Brjótið brauðteningana og stráið yfir eldfasta mótið og bakið á 200°C í 10 mínútur eða þar til teningarnir eru orðnir fallega brúnir. 



Þegar rétturinn kemur úr ofninum , stráið þá parmesan ostinum yfir heitt fatið.

Dry aged Tomahawk Ribey

1 stk. dry aged Tomahawk Ribey

Aðferð:

Horfið á myndbandið hjá Matarmönnum og lærið tæknina hvernig á að grilla steik sem þessa.

Grillið eftir leiðbeiningum frá sérfræðingunum sem þið verslið steikina hjá og notið kjöthitamæli ef þess þarf.

Steikarsmjörið er sett á steikina þegar búið er að grilla hana og hún fer í hvíld (sjá uppskrift fyrir neðan og myndband).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert