Íslenskar pönnukökur eru sívinsælar og sérstaklega á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Við bökum reglulega slíkar og sitt sýnist hverjum með fyllingar, sumir vilja sykur, aðrir rjóma, enn aðrir súkkulaði og allt þar á milli líkt og Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar veit vel. Hún tók saman sitt uppáhald á pönnukökur, jarðarber og súkkulaði og blandaði saman við rjómafyllingu og útbjó pönnuköku-köku. Í tilefni dagsins er vert að birta þessa dásamlegu uppskrift og myndband sem Berglind deildi með fylgjendum sínum á Instagram-síðu sinni. Gleðilegan 17. júní.
Þjóðleg pönnukökukaka
Pönnukökur
- 400 g hveiti
- 40 g sykur
- 1 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 900 ml nýmjólk
- 100 g brætt smjör
- 4 egg (pískuð)
- 4 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Hrærið hveiti, sykri, lyftidufti, matarsóda og salti saman í skál.
- Blandið um ¾ af mjólkinni saman við og hrærið þar til kekkjalaust.
- Bætið þá bræddu smjöri, eggjum og vanilludropum út í og hrærið áfram vel, skafið niður á milli.
- Að lokum má svo setja restina af mjólkinni saman við og hræra vel.
- Steikið síðan þunnar kökur á pönnukökupönnu og leyfið aðeins að kólna niður áður en þið raðið kökunni saman.
Fylling í pönnukökuköku
- 750 ml rjómi
- 3 tsk. flórsykur
- 1 tsk. vanillusykur
- 200 g jarðarber
- 200 g Nutella
- Jarðarber til skrauts
Aðferð:
- Þeytið rjómann ásamt flórsykri og vanillusykri þar til hann er stífþeyttur.
- Stappið jarðarberin gróft og blandið saman við rjómann.
- Hitið Nutella aðeins í skál svo auðveldara verði að dreifa því yfir með skeið.
- Setjið eina pönnuköku í botninn á um 20 cm smelluformi.
- Næst setjið þið 4 pönnukökur á kantinn á forminu svo þær nái yfir kökuna á botninum, innan á allan kantinn og hangi fram af að utanverðu (c.a jafn mikið báðu megin).
- Smyrjið næst þunnu lagi (um ½ cm) af rjóma á botninn, dreifið smá Nutella yfir og setjið næstu pönnuköku ofan á.
- Endurtakið þar til síðasta pönnukakan er orðin jafn há forminu sem þið notið.
- Náið þá í kökudisk og leggið ofan á formið á hvolfi, snúið við með því að halda fast við kökuformið og losið síðan smelluna og fjarlægið formið utan af kökunni.
- Toppið með smá rjóma, Nutella og ferskum jarðarberjum.
- Berið fram og njótið.