Þessi spennandi sushi-forréttur kemur úr smiðju Katerynu B., samfélagsmiðlara og áhugamanneskju um mat, og gleður svo sannarlega augað. Rétturinn er aðeins öðruvísi og skemmtileg samsetning að hráefnum í þremur lögum, avókadó og reyktur lax leika aðalhlutverkið. Hann er einstaklega auðveldur í framreiðslu, ljúffengur á bragðið og það besta er að rétturinn er lágkolvetna. Sjáið myndbandið á Instagram-síðu hennar hér.
Avókadó og reyktur laxatartar
Magn eftir smekk hvers og eins
- Avókadó
- Sítrónusafi
- Ferskt dill
- Svartur pipar
- Tómatar
- Graslaukur
- Sjávarsalt
- Heitreyktur lax eða reyktur lax
- Japanskt yuzu-majónes
- Sesamfræ
- Sprettur til skreytinga
Aðferð:
- Takið til mátulega stóran stálhring og setjið á disk sem þið ætlið að bera réttinn fram á, til að raða hráefninu í. Vert að skoða myndbandið vel áður en þið byrjið.
Fyrsta lagið
- Saxið avókadó í litla bita, blandið með sítrónusafa, dilli og svörtum pipar.
Annað lagið
- Skerið niður tómata í litla bita, blandið saman við graslauk og sjávarsalt.
Þriðja lagið
- Leggið ofan á reykta laxinn eftir smekk. Toppið með japönsku yuzu-majónesi, svörtum pipar og sesamfræjum eftir smekk.
- Skreytið með sprettum ef vill.
- Berið fram og njótið.