Ljúffengt bolognese með burrata osti

Tagliatelle bolognese með burrata osti sem þið eigið eftir að …
Tagliatelle bolognese með burrata osti sem þið eigið eftir að elska. Ljósmynd/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hið klassíska bolognese er ávallt gott og nýtur mikilla vinsælda á mörgum heimilum. Hildur Rut Ingimarsdóttir matarbloggari hjá Trendnet á sína útgáfu að hinu klassíska bolognese sem hún hefur aðeins breytt með frábæri útkomu. Hún ber réttinn fram með burrata osti sem lyftir réttinum upp á hærra plan og ásamt því að vera með tagliatelle í stað þess að vera með spaghettí. Þessi bragðgóði og ljúfi réttur getur ekki klikkað.

Tagliatelle bolognese með burrata

  • Tagliatelle eftir smekk
  • 1 laukur
  • 2-3 gulrætur
  • 1-2 sellerí
  • 4-5 hvítlauksrif
  • Ólífuolía
  • 500 g nautahakk
  • 1 krukka Heinz sósa með tómötum og chili
  • 1 msk. tómatpúrra
  • 1-2 msk. fersk steinselja, smátt skorin
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 1 msk. nautakraftur
  • 1/2 dl vatn (eða magn eftir smekk)

Ofan á réttinn

  • Rifinn parmesan ostur eftir smekk
  • 1-2 burrata ostur
  • Fersk basilíka eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera lauk, gulrætur og sellerí smátt.
  2. Steikið upp úr vægum hita í pott eða á pönnu.
  3. Bætið krömdum eða pressuðum hvítlauk saman við þegar laukurinn er aðeins búinn að mýkjast.
  4. Bætið nautahakkinu saman við og steikið þar til það er orðið eldað.
  5. Hellið sósunni út í ásamt tómatpúrru, steinselju, salti, pipar, nautakrafti og vatni.
  6. Blandið vel saman og leyfið þessu að malla í dágóða stund. Gott að láta þetta malla í um það bil klukkustund eða lengur. Því lengur því betra.
  7. Sjóðið tagliatelle eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  8. Blandið tagliatelle út í nautahakkið eða berið fram í sitthvoru lagi þannig að hver og einn getur skammtað sér.
  9. Toppið svo réttinn með rifnum parmesan osti, burrata og ferskri basilíku.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert