Lambakoftast með geggjuðu meðlæti

Þessi grillspjót eru syndsamlega góð með hummusi og rauðkálshrásalati.
Þessi grillspjót eru syndsamlega góð með hummusi og rauðkálshrásalati. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Lambakoftas er skemmtilegur og bragðgóður réttur sem gaman er að bjóða upp á þegar halda á grillveislu eða frumlegt matarboð. Lambakoftast borið fram með flatbrauði, hummus og rauðskálshrásalati og er fljótlegur og skemmtilegur réttur. Þetta er uppskrift sem á pottþétt eftir að slá í gegn og er að finna á uppskriftavefnum Íslenskt lambakjöt. Hér er uppskrift að réttinum og rauðkálshrásalatinu og vert er að bera réttinn fram með ljúffengum hummus og flatbrauði, einnig má vera með pítubrauð.

Lambakoftas með rauðkálshrásalati borið fram með hummus og flatbrauði

Lambakoftas

  •  500 g lambahakk
  •  1 lítill laukur, saxaður smátt
  •  2 msk. kóríander, saxað smátt
  •  2 msk. steinselja, söxuð smátt
  •  2 tsk. kummin
  •  1 tsk. paprika
  •  1 tsk. kanill
  •  ½ tsk. chili-duft
  •  ¼ tsk. sjávarsalt
  •  8 löng grillspjót, lögð í bleyti í 30 mín. ef notuð eru tréspjót
  •  1 msk. ólífuolía
  •  ½ sítróna, skorin í báta
  •  ¼ hnefafylli myntulauf

Aðferð:

  1. Setjið lambahakk í stóra skál ásamt lauk, kóríander, steinselju, kummin, papriku, kanil, chili-dufti og salti.
  2. Blandið öllu vel saman, hér er best að nota hendurnar. Skiptið hakkinu yfir í átta jafna hluta, bleytið hendurnar örlítið og mótið kúlur úr hakkinu. Mótið kúlurnar í u.þ.b. 10 cm langar lengjur.
  3. Stingið grillspjóti inn í miðjuna á hverri lengju, leggið á bakka og kælið í 1 klukkustund. Hér er einnig hægt að kæla kjötið í allt að einn sólarhring áður en það er eldað.
  4. Takið kjötið út 30 mínútur áður en það er eldað.
  5. Hitið grill eða grillpönnu og hafið á háum hita.
  6. Penslið ólífuolíu yfir kjötið og eldið í u.þ.b 8 mínútur. Snúið kjötinu við á 2 mínútna fresti
  7. Berið fram með flatbrauði eða pítubrauði, hummus, sítrónubátum, myntulaufum og rauðkálshrásalati.

Rauðkálshrásalat

  •  150 g majónes
  •  50 g jógúrt
  •  2 tsk. sítrónusafi
  •  1 tsk. sítrónubörkur, rifinn fínt
  •  1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
  •  200 g rauðkál, kjarnhreinsað og skorið mjög þunnt
  •  1 gulrót, afhýdd og rifin niður
  •  1 msk. steinselja

Aðferð:

  1. Setjið majónes, jógúrt, sítrónusafa, sítrónubörk og hvítlauk í blandara og maukið þar til allt hefur samlagast vel.
  2. Setjið rauðkál, gulrót og steinselju í skál og blandið saman.
  3. Hrærið sósunni saman við og kælið þar til fyrir notkun.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert