Eggaldin bruschettur úr smiðju Hildar

Hildur Ómars gerði þessar skemmtilegu og frumlegu bruschettur úr eggaldin …
Hildur Ómars gerði þessar skemmtilegu og frumlegu bruschettur úr eggaldin á dögunum. Samsett mynd

Hildur Ómarsdóttir matarbloggari með meiru er sniðugri en flestir þegar kemur að því að koma með skemmtilegar hugmyndir af hollum og góðum réttum. Á dögunum gerði Hildur þessar glútenlausu eggaldin bruschettur sem henta vel fyrir þá sem vilja minnka eða sneiða framhjá brauði sem ótrúlega skemmtileg hugmynd.

„Við hugmyndavinnu við þessa uppskrift sá ég þær fyrir mér sem fullkominn forrétt á sólríkum degi í góðum félagsskap. Ég viðurkenni að ég er farin að þrá svoleiðis daga. Réttinn er auðveldlega hægt að taka með sér í boð þar sem hægt er að elda eggaldinið og útbúa bruschetta mixið deginum áður. Réttinn má borða heitan og kaldan,“ segir Hildur.

Girnilegar bruschettur og samsetningin er skemmtileg.
Girnilegar bruschettur og samsetningin er skemmtileg. Ljósmynd/Hildur Ómars

Eggaldin bruschettur

Fyrir 2-4

Eggaldinið

  • 1 eggaldin
  • Ólífuolíu
  • Organic liquid basil

Bruschettamix

  1. 3 tómatar
  2. 1-2 hvítlauksrif
  3. 2 tsk. balsamikedik
  4. 1 tsk. kaldpressuð ólífuolía
  5. Lítið handfylli basil og auka til að toppa með
  6. Salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að skola og skera eggaldinið í um það bil 1 cm sneiðar.
  2. Dreifð úr sneiðunum á bretti, gerið göt í hverja sneið með gaffli og stráið um það bil hnífsoddi af salti á hverja sneið.
  3. Leyfið eggaldininu að svitna í að minnsta kosti 10 mínútur.
  4. Þerrið eggaldinið vel með eldhúsbréfi og komið eggaldinsneiðunum fyrir á bökunarpappír.
  5. Dreifið um það bil einni teskeið af organic liquid basil á hverja sneið og 1 teskeið af ólífuolíu.
  6. Setjið inn í ofn og bakið í 15 mínútur á 200°C hita.
  7. Útbúið  bruschettamixið með því að skera tómatana og basilíkuna smátt, rífa hvítlaukinn og blanda saman við restina af hráefnunum.
  8. Þegar eggaldinið er klárt, toppið þá hverja eggaldinsneið með bruschettamixi og auka basilíku.
  9. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert