Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur gefur uppskrift að girnilegri graskerssúpu sem er í miklu uppáhaldi hjá henni. Uppskriftin er úr bókinni Þú ræður sem Elísabet gaf út á dögunum en þar er að finna fróðleik um bætt mataræði, betri svefn og hvernig megi minnka bólgur í líkamanum.
„Ég mæli með því að nota hinn helminginn af graskerinu sem meðlæti með máltíðum næstu daga, til dæmis með því að skera graskerið í teninga og steikja í olíu á pönnu eða í ofni, eða með því að mauka í graskersmús. Það má líka útbúa súpu úr öllu graskerinu núna, og frysta það magn sem verður afgangs eftir þessa máltíð. Hálft meðalstórt grasker á að duga fyrir einn í tvær máltíðir,“ segir Elísabet
Graskerssúpan er ljúffeng og nærandi.
Jezebel Rose/Unsplash
Graskerssúpa Elísabetar Reynis
- 1 grasker (butternut squash)
- 1-2 bollar vatn, fer eftir stærð graskers
- 1-2 stk. grænmetisteningar, lífrænir
- ¼ tsk. cayenne pipar, eða eftir smekk
- salt og svartur pipar
Aðferð:
- Graskerið bakað heilt í ofni við 180°C í 1og ½ klst.
- Skorið í tvennt og fræin fjarlægð.
- Aðeins annar helmingurinn af graskerinu fer í súpuna, hinn lagður til hliðar.
- Graskerið er skorið í bita og maukað í blandara ásamt hæfilegu magni af vatni (súpan á ekki að vera of þykk).
- Fært yfir í pott þar sem grænmetisteningi er bætt saman við.
- Hitað að suðu. Kryddað með cayenne pipar, salti og pipar og skreytt með fersku kóríander, rétt áður en súpan er borin fram.