Helga Magga, heilsumarkþjálfi og áhrifavaldur með meiru, hittir ávallt í mark með sínum einföldu og frábæru uppskriftum sem allir geta gert. Nú eru það nestisbitarnir sem eru henni hugleiknir enda elskar hún fátt meira en að fara í fjallgöngur með vinkonum sínum eins og komst í fréttirnar í gær.
Þessir nestisbitar eru líka svo sniðugir fyrir krakka í nesti þegar þau eru á námskeiðum í sumar og fyrir á fótboltamótin svo fátt sé nefnt. Það skiptir máli að hafa bitana sem orkuríkasta og það eru þessir bananabitar svo sannarlega. Svo eru þeir líka fullkomnir í millimál fyrir unga sem aldna. Sjáið myndbandið frá Helgu Möggu hér fyrir neðan, tekur enga stund að búa til og enn styttri tíma að borða.
Bananabitar Helgu Möggu
Aðferð: