Salat vikunnar kemur úr smiðju Anitu Aspar Ingólfsdóttur og á vel við á þessum árstíma. Þetta salat er dásamlega ferskt og frábært. Í raun má segja að það sé hið fullkomna meðlæti með hvaða mat sem er og upplagt að hafa salatið með þegar grillmatur er annars vegar.
Sumarlegt caprese-salat
- 1 dós mozzarella-perlur
- 2 askja/box kirsuberjatómatar
- 2 msk. basil
- 1 stk. avókadó
- 1 stk. maískólfur / 1 dl maísbaunir
- Góð ólífuolía
- Salt eftir smekk
Aðferð:
- Skerið tómatana í helminga.
- Skerið avókadóið í litla bita.
- Grillið maískólfinn og skerið síðan baunirnar af kólfinum.
- Skerið síðan basilblöðin í ræmur.
- Blandið síðan öllu saman og smakkað til með ólífuolíu og salti eftir smekk.
- Berið fram og njótið.