Miðausturlenskt lambasalat sem þú verður að prófa

Girnilegt lambakjötssalat með perlubyggi og tahini-sósu.
Girnilegt lambakjötssalat með perlubyggi og tahini-sósu. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Hér er á ferðinni alveg dásamlegt gott salat með miðausturlensku ívafi þar sem lambakjöt er í aðalhlutverki ásamt perlubyggi og tahini-sósu. Þetta er bæði létt og bragðgott og upplagt að nota afgang af lambakjöti ef þið eigið til eftir helgina. Annars er lambamínútusteik fullkomin í þetta salat og tekur afar stutta stund að elda. Uppskriftin kemur af uppskriftavefnum Íslenskt lambakjöt. Best er að byrja á sósunni og síðan útbúa salatið sjálft.

Miðausturlenskt lambasalat með perlubyggi og tahini-sósu

Tahini-sósa

  •  2 litlir hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
  •  100 ml sítrónusafi
  •  200 ml tahini
  •  ½ tsk. sjávarsalt
  •  ¼ tsk. kummin
  •  ¼ tsk. kóríander
  •  6-7 msk. vatn, ískalt

Aðferð:

  1. Hrærið hvítlauk og sítrónusafa saman í lítilli skál, látið standa í 10 mínútur.
  2. Sigtið hvítlaukinn frá sítrónusafanum og blandið tahini, salti, kummin og kóríander saman við.
  3. Hrærið vatni saman við þar til myndast hefur slétt sósa, bætið við vatni eftir þörfum og bragðbætið með salti og sítrónusafa.
  4. Kælið þar til fyrir notkun.

Lambasalat

  •  650 g lambamínútusteik
  •  2 kúrbítar, skornir í 1,5 cm bita
  •  u.þ.b. 120 ml ólífuolía
  •  1 tsk. sjávarsalt
  •  ½ tsk. svartur pipar, nýmalaður
  •  3 skalotlaukar, skornir smátt
  •  1 ½ tsk. kummin
  •  ½ tsk. kóríander, malaður
  •  ¼ tsk. cayenne-pipar
  •  3 dl perlubygg, hægt að nota venjulegt bygg en þá breytist suðutíminn samkvæmt því
  •  200 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
  •  5 msk. svartar ólífur, steinlausar og skornar gróflega
  •  ½ rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  •  4-5 msk. granateplafræ
  •  ½ hnefafylli steinselja, skorin smátt
  •  ¼ hnefafylli myntulauf, skorin smátt
  •  1 hnefafylli klettasalat
  •  150 g fetaostur, mulin niður
  •  tahini sósa, ein uppskrift

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 200°C.
  2. Setjið kúrbít í stóra skál og blandið saman við 4 msk. af ólífuolíu ásamt ¾ tsk. af salti og ¼ tsk. af pipar.
  3. Setjið kúrbítinn á ofnplötu, með bökunarpappír undir, hér gæti þurft að nota tvær plötur.
  4. Bakið kúrbít í 20-25 mínútur.
  5. Hrærið í grænmetinu af og til yfir eldunartímann. Takið úr ofninum og setjið til hliðar.
  6. Hitið 2 msk. af olíu í miðlungsstórum potti og hafið á háum hita.
  7. Bætið við skalotlauk, kummin, kóríander og cayenne-pipar, eldið í 1 mínútu.
  8. Bætið perlubyggi saman við og eldið í 1 mín.
  9. Hellið 7,5 dl af vatni saman við byggið og sjóðið í 15 mínútur.
  10. Takið af hitanum og látið standa í 5 mínútur.
  11. Setjið byggið yfir í stóra og breiða skál eða djúpt fat og látið kólna örlítið.
  12. Blandið kúrbít saman við byggið ásamt tómötum, ólífum, rauðlauk, granateplafræjum, kryddjurtum og klettasalati, látið til hliðar.
  13. Þerrið kjötið og sáldrið yfir það salti og pipar.
  14. Hitið olíu á pönnu eða grillpönnu og hafið á háum hita.
  15. Steikið kjötið í 1-2 mínútur á hvorri hlið, eða eftir smekk.
  16. Setjið kjötið á bretti og látið það hvíla í 5 mínútur.
  17. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og blandið saman við byggsalatið.
  18. Sáldrið fetaosti yfir og berið fram með tahini-sósu.
  19. Njótið vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert