Hér er á ferðinni trúlega góður fiskréttur, ýsa með Miðjarðarhafs ívafi, sem hentar vel þegar þig langar að gera vel við þína og bjóða í mat. Það er svo gott og hollt að borða fisk tvisvar til þrisvar í viku hið minnsta og því er upplagt að prófa nýjar uppskriftir og koma með nýja bragðupplifun. Helga Magga heilsumarkþjálfi á heiðurinn af þessari uppskriftir og er eins og ávallt iðin að deila með fylgjendum sínum myndbandi af því sem hún galdrar fram.
Fiskréttur á pönnu
- 700 - 800 g ýsubitar
- 2 msk. ólífuolía
- 1 laukur
- 2-3 hvítlauksrif
- 2 box litlir tómatar
- 1 krukka kapers
- 1 msk. óreganó
- 2 öskjur ólífur
- Fiskikrydd frá Mabrúka eftir smekk
- Salt og pipar eftir smekk
- Fersk steinselja
Aðferð:
- Byrjið á því að láta fiskinn þiðna, það tekur stutta stund um 1 klukkustund.
- Byrjið á því að skera laukinn og hvítlaukinn smátt niður og steikja upp úr olíunni á pönnu.
- Bætið síðan kapers og tómötunum út á pönnuna ásamt smá óreganó kryddi og látið þetta eldast á miðlungs hita í um 10 -15 mínútur eða þar til tómatarnir eru farnir að mýkjast.
- Setjið þá lok á pönnuna ef það er til staðar.
- Bætið síðan ólífunum út á pönnuna og það er smekksatriði hvort þið viljið setja olíuna af þeim með eður ei.
- Látið þetta eldast áfram á meðan þið kryddið fiskinn eftir ykkar smekk.
- Kryddið fiskinn á báðum hliðum með salti, pipar og Fiskikryddinu frá Marbrúka.
- Raðið síðan fiskinum efst á pönnuna ásamt ferskri steinselju og eldið í um 12-15 mínútur á miðlungs hita.
- Á meðan fiskurinn er að eldast er tilvalið að sjóða hrísgrjón og útbúa ferskt salat eða jafnvel hita hvítlauksbrauð.
- Gott að kreista smá sítrónu yfir í lokin.
- Njótið með þeim sem ykkur langar mest að gera.