Fullkominn smáréttabakki fyrir barnaafmælið

Meg Quinn er sannkölluð smáréttabakkadrottning.
Meg Quinn er sannkölluð smáréttabakkadrottning. Samsett mynd

Meg Quinn, athafnakona, rithöfundur og matarstílisti, heldur úti vinsælum Instagram-reikningi sem ber titilinn A'int Too Proud to Meg. Þar deilir hún skemmtilegum og öðruvísi hugmyndum að smáréttabökkum (e. charcuterie board) með ríflega 700.000 fylgjendum sínum. 

Quinn er ótrúlega hugmyndarík og leggur mikinn metnað í að skapa skrautlega smáréttabakka sem myndu sóma sér vel á hverju veisluborði. 

Nýverið deildi hún sniðugri hugmynd að litríkum smáréttabakka sem er fullkominn í næsta barnafmæli enda gerður með ýmiss konar gómsætu sælgæti. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert