Jason og Travis Kelce með nýtt morgunkorn

NFL-deildar bræðurnir þeir Jason og Travis Kelce láta æskudraum sinn …
NFL-deildar bræðurnir þeir Jason og Travis Kelce láta æskudraum sinn rætast. Samsett mynd

NFL-deildar bræðurnir Jason og Travis Kelce gefa saman út nýtt morgunkorn í september sem kallast Kelce Mix. 

Morgunkornið, sem unnið er í samstarfi við morgunkornarisann General Mills, mun vera blanda af þremur uppáhaldsmorgunkornunum þeirra – Cinnamon Toast Crunch, Lucky Charms og Reese's Puffs. 

Bræðurnir segja að það eina sem þeir vita meira um en ruðning sé morgunkorn. Í raun taki þeir morgunkorni mjög alvarlega þar sem það hefur lengi verið stór partur af þeirra lífi.  

Jason, sem spilaði allan sinn NFL-feril með Philadelphia Eagles, lagði skóna á hilluna í mars síðastliðinn. Hann segir að það sé mikill heiður að fá að spreyta sig í morgunkornabransanum. 

„Það er mikill heiður að ganga með sigur af hólmi og sjá okkur sem opinbera meðlimi morgunkornamenningarinnar með Kelce Mix,“ segir Jason.

Æskudraumur að rætast

Travis, kærasti tólistarkonunnar Taylor Swift og leikmaður Kansas City Chiefs, segir í fréttatilkynningu að æskudraumur þeirra bræðra sé að rætast. 

„Við kláruðum tvo til þrjá kassa af uppáhaldsmorgunkorninu okkar á viku þegar við ólumst upp, þannig að fá tækifæri til að vinna með General Mills er stórt fyrir okkur,“ segir Travis. 

Travis bætir því við að hann geti auðveldlega klárað heilan kassa af Lucky Charms í einni setu. 

„Þetta er það besta. Ég gæti borðað heilan kassa núna. Bókstaflega heilan kassa. Ég gæti sett kornið í poppskál, hellt heilum líter af mjólk ofan í og bara slátrað þessu. Það gæti tekið mig þrjá klukkutíma og ég myndi á endanum bara vera að borða mjúka kornið á botninum en ég myndi njóta þess því þetta er svo geðveikt gott,“ segir Travis.

Today

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert