Öðruvísi eldhúslína Parisar Hilton

Paris Hilton með pottar og pönnur úr nýju eldhúslínunni sinni.
Paris Hilton með pottar og pönnur úr nýju eldhúslínunni sinni. Ljósmynd/Amazon

Hótelerfinginn Paris Hilton er orðin ráðsett tveggja barna móðir. Þess vegna var kominn tími fyrir hana til þess að búa til heimilislínu með pottum, pönnum, bökunarformum og ýmsu fleira sem allar mæður þekkja. 

„Þegar ég varð upptekin móðir byrjaði ég að hugsa um vörur á allt annan hátt en ég gerði áður. Ég nota miklu meira af eldhúsvörum núna þegar ég er með fjölskyldu sem þarf að fæða,“ sagði Hilton í viðtali við E! um nýjum heimilislínuna. 

Bleiki liturinn er áberandi í nýju línu Hilton. Hún segist hafa tekið eftir því að það hafi verið skortur á skemmtilegum eldhúsvörum sem væru líka flottar og nytsamlegar. 

Hilton er ekki að ljúga þegar hún segir vörurnar skemmtilegar. Steypujárnspotturinn í línunni er til dæmis ljósbleikur á litinn og eins og hjarta í laginu. Það má einnig finna hefðbundna potta og pönnur sem og tæki eins og vöfflujárn og djúpsteikingagræju fyrir franskar kartöflur. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vörur úr eldhúslínu Parisar Hilton. 

Bleiku kökuformin eru flott.
Bleiku kökuformin eru flott. Ljósmynd/Amazon
Steypujárnspotturinn er skemmtilegur.
Steypujárnspotturinn er skemmtilegur. Ljósmynd/Amazon
Flott martiniglös.
Flott martiniglös. Ljósmynd/Amazon
Hver væri ekki til í vöfflur úr þessu Paris Hilton-vöfflujárni.
Hver væri ekki til í vöfflur úr þessu Paris Hilton-vöfflujárni. Ljósmynd/Amazon
Bleik kaffikanna með hjörtum.
Bleik kaffikanna með hjörtum. Ljósmynd/Amazon
Kryddstaukar fyrir þá skipulögðu.
Kryddstaukar fyrir þá skipulögðu. Ljósmynd/Amazon
Paris Hilton gleymir ekki frönsku kartöflunum.
Paris Hilton gleymir ekki frönsku kartöflunum. Ljósmynd/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert