Opnaði eldgamalt útrunnið nammi

Chrissy Teigen smakkaði gamalt nammi nýlega.
Chrissy Teigen smakkaði gamalt nammi nýlega.

Fyrirsætan Chrissy Teigen fékk sendingu frá aðdáanda af uppáhaldsnamminu sínu sem er hætt í framleiðslu. Því miður var nammið ekki jafngott og það var áður fyrr. 

Teigen greindi frá því á samfélagsmiðlum að nammið Altoid Sour hafði verið í miklu uppáhaldi hjá henni þegar hún var unglingur. „Aðdáandi gaf mér þessa dós,“ sagði Teigen á Instagram og sýndi dósina.

Molarnir sem fengust með allskonar ávaxtabragði hættu í framleiðslu árið 2010.

„Ég hélt það væri skemmtilegt að opna hana og prófa. Ég heyri ekki neitt hristast, svo það fær mig til þess að halda að þeir séu aðeins fastir saman,“ sagði Teigen. Allt annað blasti við henni þar sem molarnir voru bráðnaðir. „Kannski ég prófi þá ekki.“

Lyktin var auk þess ekki góð. „Þetta er heldur ekki lykt sem ég kannast við.“

Hér fyrir neðan má sjá Teigen opna nammidósina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert