Það er tilvalið að hrista aðeins upp í hlutunum og útbúa extra svalandi kokteil í íspinnaformi um helgina!
Uppskriftahönnuðurinn Linda Ben töfraði þessa ljúffengu og ofureinföldu Pina colada-íspinna fram, en hún heldur úti uppskriftasíðunni Lindaben.is.
Svalandi Pina colada íspinnar
- 1 ananas
- 1 dós kókosmjólk
- 60 ml romm
Aðferð:
- Skerið börkinn frá og kjarnhreinsið ananasinn. Setjið í matvinnsluvél.
- Opnið dósina af kókosmjólkinni varlega. Takið aðeins þykka hlutann af kókosmjólkinni upp úr dósinni og setjið í matvinnsluvél. Hendið rest eða notið seinna í annan rétt.
- Setjið romm út í matvinnsluvélina og maukið.
- Hellið maukinu ofan í íspinnabox og fyrstið í a.m.k. sex klukkustundir.
- Njótið!
Girnilegt!
Ljósmynd/Lindaben.is