Breyttu til með nýveiddan fiski

Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur mælir með að þú prófir þig …
Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur mælir með að þú prófir þig áfram með nýveiddan fisk með nýstárlegum aðferðum. Samsett mynd

Þá er komið að hús­ráði vik­unn­ar úr smiðju fyr­irliða ís­lenska kokka­landsliðsins, Ísaks Arons Jó­hanns­son­ar.

Hann gef­ur les­end­um mat­ar­vefs­ins góð hús­ráð flestalla föstu­daga sem nýt­ast vel við mat­ar­gerðina, bakst­ur­inn og þegar grilla skal. Að þessu sinni gef­ur hann leggur hann til að þú leikir þér með nýveiddan fisk og prófir að bera hann fram með nýstárlegum hætti. 

Nú er mikið um að landsmenn stundi veiðar og því er þetta afar gott ráð, að breyta til með nýveiddan fisk og koma bragðlaukunum á flug.

„Algengt er að grilla fisk sem maður hefur veidd en það er margt annað hægt að gera með fiskinn. Úr lax og bleikju er til að mynda hægt að verka fiskinn og gera ceviche, tartar eða jafnvel sashimi.

Þegar sashimi er gert þá er flakið snyrt vel og sett inn í frysti yfir nótt. Daginn eftir er flakið látið þiðna og skorið í þunnar sneiðar, síðan er upplagt að bera það fram með sojasósu og jafnvel fersku íslensku wasabi. 

Tartar er einnig skemmtilegt að henda í en þá er flakið skorið í smá teninga og smakkað til með salti, sítrónuberki, graslauk, ólífuolíu og kapers. Hreint sælgæti allt saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert