Það er komið að helgarbakstrinum og viðeigandi er að nýta hráefni úr náttúrunni í baksturinn og bjóða upp á ljúffengar kræsingar með kaffinu. Nú fer senn að líða að seinni uppskerunni á rabarbaranum og þá er rabarbarinn orðinn súrari en hann var í vor. Þá er gott að bæta svolítið að af sætu með rabarbaranum sem er gott mótvægi við súra bragðið.
Ástríðubakarinn Brynja Dadda Sverrisdóttir í Móberginu upp í fjallinu í Kjós er frjó af hugmyndum hvernig má nýta rabarbarann og deilir hér með lesendum Matarvefsins dýrðlegri uppskrift að einföldu rabarbarapæi með súkkulaði sem á eftir að slá í gegn. Brynja hefur verið iðin við að deila með lesendum uppskriftum í sumar og það má með sanni segja að þær hafi allar hitt í mark.
„Rabarbarapæið hittir ávallt í mark þegar gesti ber að garði og barnabörnin vita fá betra en að fá nýbakaðar kræsingar þegar þau koma í heimsókn. Við hjónin njótum stundum líka bara tvö. Ef við erum bara tvö í kaffi nota ég lítið form og í það fara um það bil 4 stönglar, niðurskornir og 50 g af hveiti, sykri og smjöri, þannig er hægt að leika sér aðeins með þessa uppskrift,“ segir Brynja með bros á vör.
Svo girnilegt að horfa á.
Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir
Rabarbarapæ með súkkulaði
Í eldfasta mótið/formið
- Smjör eftir smekk, til að smyrja formið
- Niðursneiddur rabarbari eftir smekk, um það bil 8 stönglar er hæfilegt magn
- Súkkulaði eftir smekk, gróft saxað eða brytja niður
- Sykur ef vill, til að strá yfir rabarbarann
Deigið yfir rabarbarann
- 120 g smjör
- 120 g hrásykur
- 120 g hveiti (má líka setja haframjöl á móti hveitinu ef vill)
Aðferð:
- Byrjið á því að finna til gott eldfast fat/mót sem hæfir tilefninu og hafið stærð miðað við fjölda heimilismanna og/eða gesta.
- Smyrjið formið aðeins með smjöri.
- Setjið síðan gott botnfylli af niðursneiddum rabarbara, gott að miða við að ekkert sjáist í botninn, þetta eru sirka 8 stönglar sem passa í þessa uppskrift.
- Brytjið eða grófsaxið súkkulaði yfir, bara það súkkulaði sem er til, suðusúkkulaði eða eitthvað annað, sumir þola illa súra bragðið. Þá er allt í lagi að setja pínulítið af sykri yfir líka.
- Hitið ofninn í 200°C hita.
- Setjið fatið/mótið í heitan ofninn og bakið í 25 til 30 mínútur.
- Pæið á að vera aðeins bullandi undir og brakandi stökkt ofan á þegar það er tilbúið, það má jafnvel setja pæið aðeins undir grill til að fá það vel stökkt.
- Berið fram með ís og karamellusósu og njótið. Það má líka bera pæið fram með þeyttum rjóma og vanillusósu, bæði gott.