Chimichurri er án efa ein vinsælasta grillsósa sumarsins enda ómótstæðilega bragðgóð, fersk og holl. Kryddjurtir spila aðalhlutverkið í chimichurri-sósunni og það er nóg úrval af þeim í flestum matvöruverslunum landsins. Síðan er líka dásamlegt að gera sér ferð út á land og heimsækja gróðurhúsin og kaupa beint af býli nýjar og ferskar kryddjurtir þar sem þær eru í boði. Má þar meðal annars nefna Friðheima og Ártanga en ég hef mikla unun af því að heimsækja gróðurhúsin og kaupa mér ferskar og safaríkar kryddjurtir og nýja uppskeru af grænmeti. Nú er rétti tíminn til að næla sér í nýja íslenska uppskeru af grænmeti um land allt.
Búin að þróa mína uppáhalds
Ég er búin að þróa mína uppáhaldsuppskrift að chimichurri sem ég geri mjög oft en hún er frábær með hvers kyns steikum, sérstaklega góð með lambalundum og grilluðum fiski eins og bleikju, nýveiddum laxi og stórlúðu.
Hér er ég búin að taka saman nokkrar útgáfur af chimichurri-sósunni og heiðurinn af uppskriftunum eiga Davíð Örn Hákonarson matreiðslumeistari hjá Skreið, Hrefna Rósa Sætran matreiðslumeistari og veitingahúseigandi, Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari og yfirkokkur hjá Múlakaffi, Viktor Örn Andrésson matreiðslumeistari og einn eigenda Sælkerabúðarinnar og loks er það mín uppáhalds.
Chimichurri-sósan hans Davíðs
Girnilegt hjá Davíð.
mbl.is/Ásdís
Chimichurri-sósan hans Davíðs
- ½ pk. VAXA-kóríander
- 2 box VAXA-steinselja
- 1 grein rósmarín
- 6 greinar óreganó
- ½ grænn eldpipar
- ½ geiri hvítlaukur
- 3 msk. rauðvínsedik
- 2 dl OMED-ólífuolía – fæst á Skreið
- Salt eftir smekk
Aðferð:
Setjið öll hráefnin saman í blandara og smakkið til með salti.
Chimichurri-dressingin hans Eyþórs
Ómótstæðilega góð með grilluðum steikum.
mbl.is/Hákon
Chimichurri-dressingin hans Eyþórs
- 170 ml ólífuolía
- 30 ml rauðvínsedik
- 3 stk. fínt skornir skalotlaukar
- 1 stk. fínt rifinn hvítlaukur
- 2 stk. tómatar skornir í teninga
- 20 g steinselja fínt skorin
- 1 tsk. óreganó
- ½ tsk. chiliduft
- 1 tsk. paprika
- 1 tsk. kummín
- 1 msk. hlynsíróp
- sjávarsalt eftir smekk
- svartur pipar úr kvörn eftir smekk
Aðferð:
Blandið ólífuolíu og ediki saman með písk. Bætið afganginum af hráefninu út í og smakkið til með salti og pipar.
Látið standa inni í kæli í minnst tvær klukkustundir fyrir notkun.
Svona gerir Hrefna Sætran chimichurri-sósuna
Hrefna Rósa Sætran er með greipaldin í sinni chimichurri.
Ljósmynd/Björn Árnason
Greipaldin-chimichurri-sósan hennar Hrefnu Sætran
- ½ búnt kóríander
- ½ búnt steinselja
- 3 hvítlauksrif
- ½ stk. rauðlaukur
- ½ bolli olía
- ¼ bolli greipaldinsafi
- 1 tsk. rauðar chiliflögur
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Setjið kryddjurtirnar og laukana í blandara og maukið vel saman.
- Bætið olíu og greipsafa út í og maukið vel áfram, notið endana sem þið skáruð af til að gera sneiðar og kreistið safann úr þeim.
- Kryddið svo með chiliflögum, salti og pipar.
Chimichurri-sósan hans Viktors
Chimichurri sósan passar vel með nánast öllum grillmat.
mbl.is/Eyþór
Chimichurri-sósan hans Viktors
- 1 búnt steinselja
- 1 búnt kóríander
- 400-500 ml ólífuolía
- 2 hvítlauksgeirar
- sítrónusafi og börkur af einni sítrónu
- 2-5 stk. fínt saxað chili eftir smekk
- 1 msk. gróft salt
Aðferð:
- Blandið saman öllu grænmetinu og maukið vel saman.
- Bragðbætið með grófu salti eftir smekk.
Chimichurri-sósan mín sem er uppáhalds
Chimichurri sósan ljúfa.
Ljósmynd/Sjöfn
Chimichurri-sósa Sjafnar
- 1 stk. skalottlaukur, smátt saxaður
- 1 stk. rautt jalapenó, smátt saxað
- 3-4 hvítlauksgeirar, skera í þunnar sneiðar eða smátt skorna bita
- ½ bolli rauðvínsedik
- 1 tsk. saltflögur, má vera meira
- ½ bolli fínsaxað ferskt kóríander, lauf og stilkar
- ¼ bolli fínt söxuð fersk steinselja, lauf og stilkar
- 2 msk. fínt skorin fersk óreganólauf
- 1-2 greinar rósmarín, smátt saxað
- ¾ bolli extra virgin ólífuolía
Aðferð:
- Blandið saman skalotlauk, jalapenó, hvítlauksrifjum, rauðvínsediki og saltflögum í mortéli og merjið vel saman.
- Látið sitja í 10 mínútur.
- Hrærið síðan saman kóríander, steinselju, rósmarín og óreganó og bætið við í mortélið.
- Þeytið ólífuolíuna út í með gaffli.
- Setjið dressinguna í gott ílát eða skál og geymið í kæli fyrir notkun.