Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir matarbloggari hjá Döðlur og smjör kom með þessa frábæru grillsósu sem er töluvert hollari fyrir okkur en margar hverjar en gefur ekki eftir í bragði og áferð.
Sósuna er afar einfalt að gera og ekki láta blekkjast þó það sé heill hvítlaukur í henni því er hann svo mildur og góður eftir að hafa verið eldaður en staðreyndin er sú að heill hvítlaukur er algjörlega ómissandi í þessa sósu þegar þú ert búin að prófa einu sinni.
Sósan er frábær í bakaðar kartöflur með graslauk líkt og Guðrún sýnir hér en einnig er hún líka afar góð með kjöti, grilluðu grænmeti svo fátt sé nefnt.
Hvítlauks grillsósa
Aðferð: