Sjáðu Telmu gera kjúklingavefju

Telma Matthíasdóttir fer létt með að búa til holla og …
Telma Matthíasdóttir fer létt með að búa til holla og ljúffenga kjúklingavefju. Hér er uppskrift af einni sem allir ráða við að gera. Samsett mynd

Það er miklu einfaldara en marga grunar að gera góða kjúklingavefju á augabragði. Telma Matthíasdóttir hjá Fitubrennslunni gerði þessa ljúffengu og laufléttu kjúklingavefju fyrir fylgjendur sína á dögunum sem allir geta leikið eftir. Hver og einn getur svo valið hversu mikið að hverju hann vill hafa í vefjunni góðu. Sjáið Telmu leika listir sínar í eldhúsinu hér fyrir neðan.

Auðvelda kjúklingavefjan hennar Telmu

  • Eldaður kjúklingur að eigin vali
  • Protein wrap
  • Salat að eigin vali
  • Gúrka
  • Tómatur
  • Rauðlaukur
  • Paprika
  • Vefjusósa (sjá uppskrift fyrir neðan)

Vefjusósa

  • 1 kúfuð msk. skyr eða jógúrt
  • 4 msk. Fansy Garlic sósa Callowfit
  • 1/2 - 1 msk. Sambal Oelek
  • 1/4 tsk. hvítlauksduft
  • 1/4 tsk. svartur pipar

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í skál og hrærið vel saman.

Samsetning:

  1. Síðan er bara að setja hráefnið í vefjuna, vefja inn og njóta hvers bita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert