Appelsínutertan hennar ömmu

Gullfalleg appelsínukakan sem Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakaði fyrir ömmu sína …
Gullfalleg appelsínukakan sem Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakaði fyrir ömmu sína en uppskriftin kemur úr smiðju ömmu hennar. Ljósmynd/Guðrún Erla Guðjónsdóttir

Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og nemi í konditor sér um helgar­bakst­ur­inn að þessu sinni sem er fast­ur liður á Mat­ar­vefn­um og nýt­ur mikilla vinsælda hjá lesendum. Guðrún Erla er þekkt fyrir sínar ljúffengu og falegu kökur en hún vann meðal annars keppnina um Köku ársins í fyrra og var í öðru sæti árinu á undan. Hún er fagmaður fram í fingurgóma og allt sem hún gerir er hreint augnakonfekt að njóta.

Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og nemi í konditori er þekkt …
Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og nemi í konditori er þekkt fyrir sínar ljúffengu og fallegu kökur og hefur meðal unnið keppnina um Köku ársins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þessi kökuuppskrift er frá ömmu minni, og ég bakaði hana einmitt fyrir afmælisdaginn hennar sem var núna í vikunni, þann 13. ágúst síðastliðinn. Ég man vel eftir þessari köku úr æsku minni og finnst hún einstaklega góð svona um sumarið og sérstaklega þegar það er gott veður. Hennar uppáhalds blóm eru stjúpur þannig ég ákvað að skreyta kökuna með þeim. Stjúpur eru einstaklega fallegt skraut og ekki sakar að þær séu líka ætisblóm, það er að segja að það má borða þær,“ segir Guðrún Erla og brosir.

Fagurlega skreytt og stjúpurnar njóta sín vel á fallegu kökunni.
Fagurlega skreytt og stjúpurnar njóta sín vel á fallegu kökunni. Ljósmynd/Guðrún Erla Guðjónsdóttir

Appelsínutertan hennar ömmu

Botn

  • 240 g smjör, mjúkt
  • 97 g kranse XX
  • 240 g sykur
  • 4 egg
  • 235 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 50 g appelsínubörkur
  • 50 g súkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Hrærið sykur og kransiá meðalhraða í hrærivél.
  2. Sigtið lyftiduftinu út í hveitið.
  3. Bætið smjöri út í, í þremur hlutum, munið að skafa botninn í leiðinni.
  4. Bætið eggjum út í, í þremur hlutum, muna að skafa aftur botninn 1-2 sinnum í leiðinni. Bætið að lokum hveitiblöndunni, appelsínuberki og súkkulaði saman við.
  5. Hellið deiginu í 20 cm  stórt smurt form og bakið við 170°C  hita í 35-40 mínútur.

Smjörkrem

  • 250 g flórsykur
  • 90 g smjörlíki
  • 90 g smjör
  • 2 tsk. vanillusykur

Aðferð:

  1. Blandið saman flórsykri, og smjöri og smjörlíki.
  2. Þeytið smjörkremið saman að þangað til það verður hvítt og mjúkt.

Samsetning:

  1. Skerið botninn í tvennt.
  2. Setjið botnana tvo saman með smjörkreminu og smyrjikökuna með aftur með kremi.
  3. Gott er að kæla kökuna á milli svo einfaldara sé að skreyta hana.
  4. Skreytið kökuna eins og ykkur langar til, til dæmis með stjúpum, líkt og Guðrún Erla gerir hér.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert