Morgunbollur með jógúrt og hunangi

Ómótstæðilega morgunbollur sem ljúft er að njóta þegar þær koma …
Ómótstæðilega morgunbollur sem ljúft er að njóta þegar þær koma ylvolgar úr ofninum. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Hér er á ferðinni uppskrift, sem kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur matarbloggara hjá Eldhúsperlum, að sérlega bragðgóðum og dúnmjúkum morgunbollur sem er fljótlegt að gera og þarf ekki að hnoða. Þær má annað hvort útbúa kvöldinu áður og láta hefast inni í ísskáp yfir nótt eða láta þær lyfta sér við stofuhita. Ómótstæðilegar nýbakaðar með smjöri og osti og fullkomnar í skólanestið eða í vinnuna.

Morgunbollur með jógúrt og hunangi

U.þ.b. 10 bollur

  • 250 ml volgt vatn
  • 2 msk. hunang
  • 1 ½ msk. þurrger
  • 250 grísk jógúrt
  • 475 hveiti
  • 2 tsk. salt
  • Birkifræ eða önnur fræ að eigin vali.

Aðferð:

  1. Finnið til stóra skál sem passar vel að útbúa deigið í.
  2. Hrærið saman í skálinni; volgu vatni, geri og hunangi og látið standa í 5 mínútur eða þar til gerið leysist upp.
  3. Hrærið út í grísku jógúrt, hveiti og salti með sleif þar til deigið er komið saman. Deigið á að vera frekar blautt.
  4. Leggið plastfilmu þétt yfir skálina og látið hefast við stofuhita í eina klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast. Deigið má líka setja í ísskáp yfir nótt.
  5. Hitið ofninn í 200°C með blæstri.
  6. Hellið deiginu á hveitistráð borð og mótið lauslega 10 bollur úr því.
  7. Reynið að meðhöndla deigið eins lítið og hægt er og dýfið hverri bollu í birkifræin.
  8. Bakið bollurnar í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til þær eru fallega gylltar.
  9. Berið fram með smjöri og osti eða því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert