Einfaldur útilegueftirréttur með tveimur hráefnum

Einfaldasti útilegueftirrétttur í heimi. Hreint sælgæti að njóta.
Einfaldasti útilegueftirrétttur í heimi. Hreint sælgæti að njóta. Ljósmynd/Aðsend

Nú er liðið á seinni hluta sumarsins og síðustu ferðirnar í útilegurnar framundan. Menningarnótt verður haldin hátíðleg næstu helgi, laugardaginn 24. ágúst og síðan tekur alvaran við. Skólarnir verða komnir á fullt í næstu viku og flestir á leið í hefðbundna vinnurútínu. En það má njóta meðan hægt er og fá sér eftirrétt sem skilur eftir sig góðar minningar. Smores er eftirréttur sem er tilvalinn í útileguna, sumarbústaðinn eða hreinlega til að njóta á menningarnótt. Það er sáraeinfalt er að gera hann með einungis með tveimur hráefnum, sykurpúðum og Lu kexi. Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur með meiru á heiðurinn af þessari snilld og segir að þessi eftirréttur slái ávallt í gegn hjá sér.

Smores með Lu kexi og sykurpúðum

  • 1 pk. Lu kex
  • 1 pk. sykurpúðar að eigin vali

Aðferð:

  1. Skelltu sykurpúðanum á spjótið og hafðu Lu kex með súkkulaði tilbúið.
  2. Þegar sykurpúðinn er orðinn gullinbrúnn þá skellir Lu kexi súkkulaðimegin ofan á sykurpúðann báðum megin og síðan leyfir þú súkkulaðinu að bráðna.
  3. Síðan er bara að njóta, gerist ekki einfaldara.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert