Breskar sælkeravörur prýða hillurnar þessa dagana

Sigurður Reynaldsson, Dr. Bryony Mathew og Chris Barton opnuðu Breska …
Sigurður Reynaldsson, Dr. Bryony Mathew og Chris Barton opnuðu Breska daga með formlegum hætti með því að klippa á borðann. Ljósmynd/Daniel Blik Studio

Í gær, fimmtudaginn 22. ágúst síðastliðinn, hófust Breskir dagar í verslunum Hagkaups þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval af hinum ýmsu vörum frá Bretlandi. Mikið er um dýrðir um verslunum og þeir sem hafa mikið dálæti af breskum vörum, hvort sem það eru matvörur, sælgæti, te eða annað sem er einkennandi fyrir Bretland geta glaðst.

„Þemadagar í verslunum okkar eru skemmtileg tilbreyting fyrir neytendur þar sem úrval af nýjum og spennandi vörum er sérlega mikið á þemadögum,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups.

Breskar sælkeravörur eru í forgrunni þessa dagana í hillum Hagkaups.
Breskar sælkeravörur eru í forgrunni þessa dagana í hillum Hagkaups. Ljósmynd/Daniel Blik Studio

Sendiherra Bretlands á Íslandi klippti á borða

Breskir dagar voru formlega settir þegar sendiherra Bretlands á Íslandi, Dr. Bryony Mathew klippti á borða og bauð gesti og gangandi velkomna á Breska Daga í Hagkaup. Ásamt sendiherra voru á svæðinu His Majesty‘s Trade Commissioner for Europe, Chris Barton og Sigurður Reynaldsson.

„Viðskiptavinir okkar elska nýjungar og við njótum þess að geta skreytt búðirnar okkar með einhverju spennandi. Bretland er þemað að þessu sinni, þar fá viðskiptavinir okkar að upplifa nýjar tegundir í te, sælgæti, kexi, snakki og fleiru spennandi. Þá verðum við með jarðarber, bláber og hindber frá Bretlandi næstu dagana. Það er því fullt af spennandi hlutum að skoða og hvetjum við alla til að heimsækja okkur næstu dagana“ segir Sigurðu sem er afar spenntur fyrir Breskum dögum.

Bresku dagana vinna Hagkaup að hluta til í samstarfi við Breska sendiráðið í ár en fulltrúar Bretlands voru ánægð með að sjá fjölbreytt úrval af Breskum vörum í verslunum. „Það er mjög gaman að sjá og upplifa endurkomu Breskra Daga í Hagkaup. Úrvalið er til fyrirmyndar og ég vona að allir geti smakkað eitthvað nýtt frá Bretlandi á næstu dögum með vinum og fjölskyldu,“ segir Dr. Bryony Mathew sendiherra Bretlands.

Lilja Björg Gísladóttir, sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og María Guðjónsdóttir …
Lilja Björg Gísladóttir, sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og María Guðjónsdóttir viðskiptafulltrúi breska sendiráðsins. Ljósmynd/Daniel Blik Studio
Fyrir utan Hagkaup í Smáralind er fallegur Mini Cooper frá …
Fyrir utan Hagkaup í Smáralind er fallegur Mini Cooper frá BL fullur af breskum vörum sem er hluti af skemmtilegum leik sem Hagkaup og breska sendiráðið bjóða upp á á Breskum dögum. Ljósmynd/Daniel Blik Studio

Stoltur að sjá breskum vörum sé gert hátt undir höfði

Chris Barton segist stoltur af því að sjá breskum vörum sé gert hátt undir höfði á þennan hátt. „Millilandaviðskipti Bretlands og Íslands nema 2 milljörðum punda á ári og fara vaxandi. Neytendavörur skipa þar stóran sess og við erum stolt að geta stutt við Breska Daga með GREAT herferðinni okkar. Markmiðið með GREAT herferðinni er að nýta öll tækifæri á erlendum mörkuðum til að lyfta upp breskum vörum og auka útflutning frá Bretlandi.“

Fullur bíll af breskum kræsingum.
Fullur bíll af breskum kræsingum. Ljósmynd/Daniel Blik Studio

Breskt „afternoon tea

Bresku dagarnir eins og aðrir þemadagar í Hagkaup verða fullir af skemmtilegum uppákomum en sem dæmi má nefna að þriðjudaginn 27. ágúst næstkomandi verður spennandi námskeið í Hagkaup í Smáralind en þá mun matreiðslumeistarinn Ylfa Helgadóttir kenna gestum að reiða fram breskt ,,afternoon tea“ sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi síðustu ár en áhugasamir geta skoðað frekari upplýsingar um námskeiðið hér.

Breskir dagar standa yfir til 2. september næstkomandi og það er um að gera að kíkja ferð í verslanir Hagkaups og skoða úrvalið af Breskum vörum.

Bresk leikföng og bangsar fá líka að njóta sín.
Bresk leikföng og bangsar fá líka að njóta sín. Ljósmynd/Daniel Blik Studio
Gleðin í fyrirrúmi þegar Bresku þemadagarnir opnuðu formlega. Sigurður Reynaldsson, …
Gleðin í fyrirrúmi þegar Bresku þemadagarnir opnuðu formlega. Sigurður Reynaldsson, Dr. Bryony Mathew og Chris Barton. Ljósmynd/Daniel Blik Studio
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert