Einn vinsælasti kokteillinn sem sögur fara af í dag er espresso martini. Hér er komin syndsamlega góð espresso martini ostakaka sem á pottþétt eftir að njóta vinsælda hjá espresso martini aðdáendum líka. Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar töfraði þessa fram á dögunum og hún sló í gegn. Hægt er að sjá Berglindi útbúa þessa girnilegu ostaköku á Instagram síðunni hennar hér. Þessi er líka svo fallega borin fram, mikið augnakonfekt að njóta.
Espresso martini ostakaka
Fyrir 6 - passar í 6 hanastélsglös
- 12 stk. Oreo kexkökur
- 40 g brætt smjör
- 500 g rjómaostur við stofuhita
- 160 g sykur
- 1 msk. kakóduft + meira til skrauts
- 2 tsk. vanillusykur
- 50 ml sterkt uppáhellt kaffi við stofuhita
- 100 g suðusúkkulaði brætt
- 300 ml þeyttur rjómi
- Kaffibaunir til skrauts
Aðferð:
- Byrjið á því að mylja kexið í matvinnsluvél og hræra síðan smjörinu saman við og skiptið niður í botninn á glösunum.
- Stífþeytið rjómann og leggið til hliðar.
- Þeytið næst rjómaost, sykur, kakóduft og vanillusykur saman stutta stund.
- Blandið þá uppáhelltu kaffi og bræddu súkkulaði saman við og skafið vel niður á milli.
- Þegar rjómaostablandan er orðin slétt og jöfn má vefja þeytta rjómanum saman við hana með sleikju.
- Skiptið ostakökublöndunni á milli glasanna og sléttið úr.
- Gott er að kæla ostakökuna í að minnsta kosti 3 klukkustundir (eða yfir nótt) og sigta síðan kakóduft yfir og skreyta hvert glas með þremur kaffibaunum.
- Berið fram og njótið í góðum félagsskap við kertaljós.