Rauðrófuþeytingur með bláberjum, appelsínum og kanil

Rauðrófuþeytingur með bláberjum, appelsínum og kanil. Það er fullkomið að …
Rauðrófuþeytingur með bláberjum, appelsínum og kanil. Það er fullkomið að nota ný íslensk aðalbláber í þennan glaðning. Ljósmynd/Hildur Ómarsdóttir

Hér er ferðinni þeytingur sem er bæði sætur og súr með dass af hátíðleika eins og Hildur Ómars orðar svo vel. „Hann er ríkur af andoxunarefnum, C-vítamíni og fleiri næringarefnum sem efla bæði ónæmiskerfið og blóðið í okkur. Fullkominn fyrir haustbyrjun,“ segir Hildur Ómars með bros á vör en hún heldur úti uppskriftavefnum sem ber einfaldlega heitið Hildur Ómars.

Rauðrófuþeytingur með bláberjum, appelsínum og kanil

Fyrir 2-3

  • 3 appelsínur (afhýddar)
  • 3 dl frosin vilt lífræn bláber
  • 1 dl rauðrófusafi frá Beutelsbacher
  • 1 banani
  • vænn biti engifer
  • dass af kanil

Aðferð:

  1. Fjarlægið hýðið af appelsínunum og setjið í góðan blandara ásamt öllu hinu og blandið þar til orðið rennislétt.
  2. Hellið í falleg glös og njótið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert