Kenndi gestum að framreiða fallegt og bragðgott Afternoon Tea

Ylfa Helgadóttir matreiðslumeistari kenndi gestum að reiða fram fallegt og …
Ylfa Helgadóttir matreiðslumeistari kenndi gestum að reiða fram fallegt og bragðgott Afternoon Tea. Samsett mynd

Þriðjudaginn 27. ágúst síðastliðinn var Afternoon Tea viðburður í verslun Hagkaups í Smáralind í boði Hagkaups og Breska sendiráðsins. Fjölmennt var á námskeiðinu og því óhætt að segja að fjöldi Íslendinga sé spenntur fyrir þessari skemmtilegu bresku hefð.

Það var matreiðslumeistarinn Ylfa Helgadóttir sem fór fyrir námskeiðinu og kenndi gestum hvernig hægt er að reiða fram einfalt, fallegt og bragðgott Afternoon Tea. Ylfa fór líka yfir sögu hefðarinnar og hinar ýmsu reglur sem henni fylgja.

Hinn hefðbundni 3ja hæða Afternoon tea diskur með kræsingunum sem …
Hinn hefðbundni 3ja hæða Afternoon tea diskur með kræsingunum sem voru töfraðar fram. Ljósmynd/ Silja Rut Thorlacius

Sú breska hefð sem poppar fyrst upp í hugann

Viðburðurinn var hluti af Breskum dögum sem nú standa yfir í Hagkaup og hafa fengið góð viðbrögð viðskiptavina. „Viðskiptavinir okkar virðast taka vel í þessa skemmtilegu þemadaga og við erum sérstaklega ánægð með viðbrögðin við Afternoon Tea námskeiðinu okkar,“ segir Lilja Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup. „Við höfum reynt eftir fremsta megni að vera með spennandi námskeið tengd þemadögunum okkar og það hefur gengið vonum framar. Í þetta skipti lá í augum uppi að bjóða upp á námskeið í Afternoon Tea því sú hefð er eitt af því fyrsta sem poppar upp í hugann þegar hugsað er um breska matarmenningu,“ bætir Lilja við.

Ylfa með svampkökurnar í vinnslu.
Ylfa með svampkökurnar í vinnslu. Ljósmynd/Silja Rut Thorlacius.

Lærðu að baka klassískar breskar skonsur

Á námskeiðinu lærðu gestir meðal annars að baka klassískar breskar skonsur, gera hinar ýmsu tegundir af fingrasamlokum og hvernig á að brugga te á réttan máta. Breskir dagar standa yfir til 2. september og því um að gera að gera sér ferð í verslanir Hagkaups og kynna sér alls konar spennandi breskar vörur.

Liltar svampkökur. með lemoncurd og ferskum berjum.
Liltar svampkökur. með lemoncurd og ferskum berjum. Ljósmynd/Silja Rut Thorlacius.
Veitingarnar heilluðu gesti.
Veitingarnar heilluðu gesti. Ljósmynd/Silja Rut Thorlacius.
Ylfa Helgadóttir matreiðslumeistari, Lilja Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og …
Ylfa Helgadóttir matreiðslumeistari, Lilja Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og María Guðjónsdóttir viðskiptafulltrúi Breska sendiráðsins. Ljósmynd/Silja Rut Thorlacius.
Ylfa veitir góð ráð.
Ylfa veitir góð ráð. Ljósmynd/Silja Rut Thorlacius
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert