Ekta írskt nautagúllas með Guinness-bjór

Ekta írskt nautagúllas sem kemur með haustið.
Ekta írskt nautagúllas sem kemur með haustið. Ljósmynd/Andrea Gunnarsdóttir

Hér er að ferðinni ekta haustréttur sem er upplagt að bjóða fjölskyldunni upp á. Heiðurinn af þessari uppskrift á ástríðukokkurinn Andrea Gunnars sem er orðin lesendum kunn, meðal annars fyrir nestishugmyndirnar sem hafa verið birtast síðustu daga.

Andrea segir að gúllasréttir njóti mikilla vinsælda á heimilinu.

„Við erum mjög hrifin af gúllasi af öllum gerðum, sérstaklega þegar það er orðið haustlegt og hráslagalegt úti. Ég rak því upp stór augu þegar ég sá uppskriftir að írsku nautagúllasi með Guinness-bjór og rauðvíni á Pinterest og vissi að þetta væri eitthvað sem ég bara yrði að prófa. Ég tók uppskriftina og gerði hana að minni. Ég bar gúllasið fram með nýbökuðu brauði og rauðvíni og ætlaði varla að geta náð mér niður úr hamingjukastinu sem fór af stað við matarborðið. Þið bara verðið að prófa,“ segir Andrea að lokum.

Írskt nautagúllas með Guinness-bjór og rauðvíni

  • 1,2 kg nautagúllas
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • 2 tsk. nýmulinn svartur pipar
  • 2 gulir laukar, fínhakkaðir
  • 3 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
  • 4-5 gulrætur, afhýddar og skornar í sneiðar
  • 3 msk. hveiti
  • 3 bollar nautasoð
  • 2 bollar vatn
  • 1 bolli Guinness-bjór
  • 1 bolli rauðvín
  • 2 msk. Worcestershire-sósa
  • 2 nautateningar
  • 3 msk. tómatpúrra
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 tsk. þurrkað timian
  • 8 kartöflur, afhýddar og skornar í teninga
  • 2 msk. steinselja, hökkuð

Aðferð:

  1. Hitið ólífuolíu í stórum og góðum potti á mjög háum hita.
  2. Kryddið nautakjötið með salti og pipar.
  3. Brúnið nautakjötið í nokkrum skömmtum þegar olían er orðin mjög heit.
  4. Færið kjötið yfir á disk.
  5. Lækkið hitann í miðlungsháan.
  6. Ef potturinn er þurr, bætið þá smá ólífuolíu í hann.
  7. Setjið lauk, hvítlauk og gulrætur í pottinn og steikið í 5 mínútur. Bætið hveiti í pottinn og steikið í 1 mínútu.
  8. Setjið nautasoðið í pottinn í smáum skömmtum og hrærið vel á milli með sleif til þess að hveitið eyðist upp.
  9. Bætið vatni, Guinness-bjór, rauðvíni, nautateningum, Worcestershire-sósu og tómatpúrru í pottinn og blandið öllu vel saman.
  10. Bætið timian, lárviðarlaufum og nautakjötinu, ásamt öllum safa af því, í pottinn.
  11. Lækkið hitann á miðlungslágan, Andrea notaði stillingu 3 af 9, setjið lok á pottinn og látið malla í 2 klukkustundir eða lengur ef tíminn leyfir.
  12. Þegar 25 mínútur eru eftir af eldunartímanum er kartöflum bætt í pottinn og látnar sjóða án loks.
  13. Smakkið til með salti og pipar.
  14. Berið réttinn fram í skálum og stráið fínhakkaðri steinselju yfir hann.
  15. Berið fram með góðu brauði ef þess er óskað og njótið í botn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert