Plómuchutneyið hennar Hönnu

Hanna Thordarson ræktar plómur í óupphituðu gróðurhúsi og fær fína …
Hanna Thordarson ræktar plómur í óupphituðu gróðurhúsi og fær fína uppskeru í september. Hún gerir til að mynda plómuchutney með chili og engifer. Samsett mynd

Leirlistakonan og ástríðukokkurinn Hanna Thordarson veit fátt skemmtilegra en að dunda sér í eldhúsinu og framreiða kræsingar sem gleðja matarhjartað. Hún er hæfileikarík og skapandi í matargerð og svo ræktar hún líka plómur. Hún deildi á dögunum með fylgjendum sínum þessari frábæru uppskrift af plómuchutney með chili og engifer.

„Plómuuppskeran í óupphitaða gróðurhúsinu mínu er í september. Stundum er uppskeran góð og þá hefur mér og mínu fólki ekki tekist að sporðrenna þeim öllum. Ég fann þessa góðu uppskrift að plómuchutney og hef notað hana fyrir þær plómur sem ekki komast í gegnum gæðaeftirlit heimilisfólksins,“ segir Hanna.

Eins og Hanna segir þá eru plómur eru sem betur fer í boði í verslunum en það búa ekki allir svo vel að rækta þær. Mörgum krökkum finnst gott að hafa þær með í nestisboxinu. Ef lúnar plómur finnast í ávaxtaskúffunni er upplagt að nýta þær í plómuchutney en það á t.d. vel með kjúkling eða ofan á bleikjuna. Það vel hægt að mæla með þessari uppskrift.

Girnilegt plómuchutneyið hennar Hönnu.
Girnilegt plómuchutneyið hennar Hönnu. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Plómuchutney með chili og engifer

  • 300-350 g plómur
  • 1 dl (75 g) muscovadósykur eða brúnn sykur
  • ½ dl rauðvínsedik
  • 1 rauður chilipipar  – saxaður fínt niður (smekksatriðið hversu mikið fræhreinsað, meiri fræ, þeim mun sterkara)
  • 1 msk. engiferrót, rifin fínt, ef hana notar lífrænt engifer sleppi hún að flysja það

 Aðferð:

  1. Skerið plómurnar niður og steinhreinsið, setjið síðan í pott.
  2. Stráið sykri stráð yfir og látið bíða um stund.
  3. Látið suðuna látin koma upp og bætið við ediki, chili og engifer.
  4. Látið sjóða á meðalhita í 30 – 40 mínútur.
  5. Setjið í hreina krukku, ágætt að sjóða hana í örstutta stund, lok skrúfað á.
  6. Berið fram með því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert